Skora á stjórnvöld að bregðast við skýrslu um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. febrúar 2016 21:30 Frá barna-og unglingageðdeild Landspítalans. vísir/vilhelm
Átta félagasamtök skora á stjórnvöld að bregðast við þeim athugasemdum sem settar eru fram í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar um geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga. Í skýrslunni, sem kom út í dag, kemur fram að börn og unglingar geti þurft að bíða í allt að eitt og hálft ár eftir nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. Ríkisendurskoðun telur þetta óviðunandi en félagasamtökin átta taka heilshugar undir hvert orð í skýrslunni. Þá segja hana undirstrika þá alvarlegu stöðu sem verið hefur í málaflokknum um langa hríð. „Auk þess að ganga gegn lögbundnum skyldum ríkisins stefnir þessi bið bæði langtímahagsmunum þess og velferð borgaranna í tvísýnu. Ef ekki er tekið á markvissan hátt á geðheilsuvanda barna og unglinga um leið og hans verður vart aukast til muna líkur þess að þungbærar og langvarandi afleiðingar, jafnvel örorka, komi síðar fram,“ segir í áskoruninni. Þá segir jafnframt að seint verði mikilvægi snemmtækrar íhlutunar á grunnstigi undirstrikað. Þá séu ótalin þau áhrif sem aðgerðaleysi hefur óhjákvæmilega á þann sem þjónustuna skortir og alla sem að honum standa. Að áskoruninni standa ADHD Samtökin, Barnaheill, Einstök börn, Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð, Átak, félag fólks með þroskahömlun, Einhverfusamtökin, Landssamtökin Þroskahjálp og Umhyggja, félag til stuðnings langveikum börnum.
Tengdar fréttir Óviðunandi bið eftir geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga Börn og unglingar geta þurft að bíða í allt að eitt og hálft ár eftir nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. 23. febrúar 2016 11:51 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Óviðunandi bið eftir geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga Börn og unglingar geta þurft að bíða í allt að eitt og hálft ár eftir nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu. 23. febrúar 2016 11:51