Skipa eftirlitsnefnd með fjármálum íþróttafélaga Benedikt Bóas skrifar 17. desember 2016 07:00 Hafnafjarðarliðin FH og Haukar mættust í vikunni. Félögin eru nú kominn með eftirlitsnefnd vegna fjármála sinna. Vísir/Ernir
Bæjarráð Hafnarfjarðar ákvað á fundi sínum í vikunni að stofna eftirlitsnefnd með fjármálum íþróttafélaga í bænum. Töluvert hefur verið fjallað um fjármál íþróttafélaganna í bænum, FH og Hauka, nú síðast í byrjun desember eftir að Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri lagði fram minnisblað á fundi bæjarráðs þar sem kom fram að bærinn hefði greitt 138,8 milljónum hærri upphæð en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna leigu á Risanum, knatthúsi FH-inga. Á árunum 2007-2015 greiddi bærinn alls 207,2 milljónir kr. á verðlagi hvers árs vegna leigunnar. Haraldur sagði í samtali við Fréttablaðið að kveðið sé á um nefndina í samningi á milli bæjarins og Íþróttabandalags Hafnarfjarðar. Hún hafi eitt sinn verið starfandi en ekki verið endurvakin á þessu kjörtímabili. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi segir að nefndin verði skipuð utanaðkomandi fagaðilum. „Það eru miklir hagsmunir í húfi. Bærinn er að veita miklum peningum inn í íþróttafélögin á hverju ári og það er eðlilegt að það sé fagleg eftirlitsnefnd að störfum og hún verði skipuð fagaðilum. Þá er allt uppi á borðum og allir ársreikningar eru vel yfirfarnir og gegnsæi því það eru miklir hagsmunir. Það er eðlilegt að í svona stóru bæjarfélagi með virkt íþróttalíf sé eftirlit.“ Rósa segir að bæjarfélagið hafi unnið mikið starf í að endurskipuleggja allan rekstur. Meðal þess sem var skoðað voru greiðslur til íþróttafélaga.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira