Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært leikstjórann og tónlistarmanninn Ágúst Bent Sigbertsson fyrir líkamsárás sem átti sér stað aðfaranótt föstudagsins 14. mars í fyrra á skemmtistaðnum Loftinu í Austurstræti.
Bent réðst þá á Friðrik Larsen, stjórnarformann ÍMARK, en í ákæru er Bent gefið að sök að hafa slegið Friðrik ítrekuðum hnefahöggum í andlitinu. Afleiðingar árásarinnar voru þær, að því er greinir í ákæru, að Friðrik „hlaut ótilfært brot á vinstra nefbeini, bólgur og mar á nefi og augnsvæði og sprungna vör.“
Samkvæmt upplýsingum Vísis hefur Bent játað líkamsárásina fyrir dómi en neitar þeim afleiðingum að nefbrot hafi orðið vegna hennar.
Meint brot Bents varðar við 1. málsgrein 218. greinar almennra hegningarlaga og getur varðað allt að þriggja ára fangelsi.
Einar Hugi Bjarnason, lögmaður Friðriks, gerir kröfu um rúmlega 4 milljónir króna í skaðabætur fyrir hönd umbjóðanda síns.
Bent játar líkamsárás en neitar afleiðingunum

Tengdar fréttir

Líkamsárás á Loftinu: Bent lét höggin dynja á stjórnarformanni ÍMARK
Friðrik Larsen hringdi sjálfur í lögreglu sem fylgdi honum á slysadeild. Ágúst Bent flúði af vettvangi.

Bent um líkamsárásina: Ég skeit á mig og missti mig í fimm sekúndur
Ágúst Bent Sigbertsson sér eftir atvikinu á Loftinu og segist ætlar læra af því.

Stjórnarformaður ÍMARK hyggst kæra Bent fyrir „fólskulega árás“
Atvikið átti sér stað á skemmtistaðnum Loftið eftir að ÍMARK-hátíðinni lauk.