Norskur piltur sem myrti vin sinn í fyrra ætlaði að fremja fjöldamorð í skóla Birgir Olgeirsson skrifar 1. mars 2016 21:26 Pilturinn hafði gert ráð fyrir að láta lífið í skotbardaga við lögregluna í Noregi eftir að hafa kveikt í skólanum. Vísir/EPA
Lögreglan í Noregi telur að pilturinn sem myrti vin sinn þar í landi í fyrra hafi ætlað að kveikja í skólanum sínum og brenna þannig marga samnemendur sína inni.Greint er frá þessu á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Þar segir að pilturinn, 19 ára, hafi ætlað að verða samferða vini sínum, hinum átján ára gamla Joakim Ophaug Røksland, að skólanum sem þeir sóttu í bænum Mandal, 22. apríl í fyrra. Verdens gang segir piltinn hafa haft í hyggju að kveikja í samkomusal skólans á þeim tíma sem hann vissi að margir nemendur yrðu saman komnir þar þennan dag. Ætlaði að koma í veg fyrir að vinur sinn myndi brenna inni Hefur Verdens gang eftir lögreglunni Joakim hafi ekki vitað betur en þeir tveir hafi verið á leið í skólann. Þegar Joakim kom hins vegar heim til piltsins varð raunin önnur. Pilturinn batt Joakim fastan til að koma í veg fyrir að Joakim færi með honum í skólann og myndi þar með bíða bana. Pilturinn ætlaði síðan að taka bíl Jóakims og fara á honum í skólann. Þegar þarna var komið við sögu hafði pilturinn, samkvæmt Verdens Gang, klætt sig í hermannagalla og skothelt vesti. Þegar hann hins vegar fann ekki lyklana að bíl Joakims reiddist hann snögglega og drap hann með sveðju.Meta hvort hann sé sakhæfur Ríkissaksóknari í Noregi gaf út ákæru gegn piltinum, sem hefur ekki verið nafngreindur, í dag. Verjandi hans sagði við Verdens gang að pilturinn gangist við glæpnum en nú sé verið að meta hvort hann sé sakhæfur. Verði hann metinn ósakhæfur verður hann vistaður á stofnun í stað fangelsis. Eftir að hafa myrt vin sinn lagði pilturinn af stað vopnaður startbyssu, tveimur eftirlíkingum af skotvopnum og hnífi. Er hann sagður hafa hótað nágranna vinar síns með startbyssunni áður en hann kom við í verslun á leið í skólann til að fá sér vatn. Skömmu síðar handtók lögreglan hann eftir að hafa fengið tilkynningar frá vegfarendum um undarlega hegðun hans. Verdens gang segir piltinn hafa verið búinn að ákveða að láta lífið í skotbardaga við lögreglu eftir að hafa kveikt í skólanum. Lögreglan telur piltinn hafa undirbúið þetta ódæði í þó nokkurn tíma áður en hann lét til skara skríða í fyrra.Hafði verið til skoðunar hjá norsku leyniþjónustunni Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem lögreglan hafði heyrt af þessum pilti því mánuði fyrir þennan atburð hafði móðir hans haft samband við lögreglu og lýst yfir áhyggjum vegna sonar síns. Samkvæmt heimildum Verdens Gang hafði pilturinn lagt á ráðin um að ganga til liðs við hersveitir Kúrda í Írak til að berjast við hryðjuverkasamtökin ISIS. Eftir að hafa rætt við móður hans hafði lögreglan samband við norsku leyniþjónustuna sem upplýsti að hún hefði fylgst með piltinum. Í ljósi þess að slík ferð né tilgangur hennar væri ekki brot á norskum lögum gerði leyniþjónustan ekki meira í málinu.
Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira