Verulegur hagnaður af skipulagðri glæpastarfsemi hér landi Birgir Olgeirsson skrifar 13. september 2015 18:55 Illa fengið fé kann að valda markaðsskekkju hér á landi þegar það er notað til fjárfestinga í löglegri starfsemi og fasteignakaup. Vísir
Illa fengið fé úr fíkniefnaviðskiptum kann að valda markaðsskekkju á Íslandi þegar það er notað til fjárfestinga í löglegri starfsemi og kaupum á fasteignum. Þetta kemur fram í skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um mat á skipulagðri glæpastarfsemi. Þar er fjallað um ólöglegan hagnað af skipulagðri brotastarfsemi en greiningardeild ríkislögreglustjóra telur ljóst að hér á landi sé að finna aðila, innlenda og erlenda, sem hagnast verulega af skipulagðri brotastarfsemi, einkum fíkniefnaviðskiptum. Greiningardeildin segir reynsluna kenna að slíkir aðilar séu líklegir til að tengjast annars konar brotastarfsemi, ekki síst peningaþvætti. „Samfélagsskaðinn sem þessir aðilar valda er því ekki bundinn við efnin sem þeir selja heldur kann hann einnig að felast í þeirri markaðsskekkju sem fylgir peningaþvætti þ.e. þegar illa fengið fé er notað til fjárfestinga í löglegri starfsemi og kaupum á fasteignum.“ Greiningardeildin segir fíkniefni vera samfélagsvanda sem lögreglan ein fær ekki leyst. Í skýrslunni kemur fram að innan lögreglunnar sé sú skoðun almenn að umræðan í samfélaginu um fíkniefni sé úr hófi fram „jákvæð“ á þann veg að tilhneigingar gæti til að gera lítið úr skaðsemi fíkniefna. Greiningardeildin segir það vera mat margra innan lögreglunnar að færa megi rök fyrir því að slíka umræða verði fremur til þess að ábendingum um framleiðslu, sölu og meðferð fíkniefna fækki. Er umræðan einnig talin gagna gegn viðleitni til forvarnarstarfs á þessu sviði.
Tengdar fréttir Fimm til tíu skipulagðir glæpahópar starfi á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á Íslandi telur sig ekki færa um að halda uppi ásættanlegri frumkvæðislöggæslu. 13. september 2015 16:42 Mest lesið Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Innlent Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Erlent „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Innlent Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Innlent Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Erlent Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Innlent Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Innlent Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Innlent Fleiri fréttir „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Mikið að gera á mörgum vígstöðvum „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Rýma hús á Seyðisfirði Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Glæný könnun, óveðrið og sjálfkeyrandi bílar Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Fjórðungur Hringvegarins lokaður Drengur skar mann í Strætó Saka stjórnarþingmenn um að vanvirða bændur Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Öllu innanlandsflugi aflýst Einn í gæsluvarðhaldi eftir stunguárás í miðborginni Þrjár nýjar rennibrautir á Sauðárkróki í sumar Vegalokanir, snjóflóðahætta og óvissustig Bændurnir í Gunnbjarnarholti hlutu landbúnaðarverðlaunin Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Hafi ekki áhrif á leigumarkaðinn til skemmri tíma Minnir á að flest kynferðisbrotin eigi sér stað á heimilinu Vonskuveður enn og aftur um mestallt land Rannsökuðu meint kynferðisbrot á leikskóla Bein útsending: Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands Aðalmeðferð hafin í máli Helga Bjarts Átta mánaða skilorð fyrir ofbeldi í nánu sambandi og eignaspjöll Vísað úr landi og bannað að snúa aftur vegna þjófnaðar Rannsökuðu ekki nauðgun og báðu sakborning afsökunar Sjá meira
Fimm til tíu skipulagðir glæpahópar starfi á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á Íslandi telur sig ekki færa um að halda uppi ásættanlegri frumkvæðislöggæslu. 13. september 2015 16:42