Dregur úr skjálftavirkni við Bárðarbungu Aðalsteinn Kjartansson skrifar 3. mars 2015 12:13 Enn er gasmengun við eldstöðvarnar. Vísir/Vilhelm
Vísindamenn vinna að úrvinnslu gagna og athugunum á umbrotasvæðinu við Bárðarbungu til að endurmeta gildandi hættumat. Á fundi Vísindaráðs Almannavarna var ákveðið að taka næstu viku í það verkefni og mun ráðið funda næst þriðjudaginn 10 .mars og taka í framhaldinu ákvarðanir um breytingar á hættumati og lokunarsvæðum. Samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum hefur dregið mjög úr skjálftavirkni í Bárðarbungu en aðeins einn skjálfti yfir tvö stig síðan á laugardag. Sá skjálfti var 2,3 stig og reið yfir á í gær klukkan 04.08. Alls hafa mælst um það bil sextíu skjálftar síðan á laugardag. 120 skjálftar hafa mælst í kvikuganginum síðan á laugardag en stærsti skjálftinn þar mældist 1,6 stig á sunnudag, klukkan 02.10. Meiri jarðskjálftavirkni mælist í kvikuganginum sem líklega er afleiðing þess að þrýstingur minnkar, að því er segir í tilkynningunni. Við Tungnafellsjökul mældust þrír skjálftar; um þrjátíu skjálftar við Herðubreið og tveir í Grímsfjalli. Allir skjálftarnir voru minni en tvö stig að stærð en óverulegar jarðskorpuhreyfingar mælast á svæðinu. Gasmengun mælist enn við og yfir hrauninu og er búist við því að mengunin verði áfram við eldstöðvarnar. Fylgst verður vel með gasmælingum og gefnar út gasspár ef þurfa þykir. Litakóði fyrir flug er gulur fyrir Bárðarbungu, samkvæmt tilkynningunni.
Bárðarbunga Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira