Rauði krossinn heldur hjálparstarfi áfram um jólin Aðalsteinn Kjartansson skrifar 23. desember 2015 11:00 Sjálfboðaliðar pökkuðu inn jólagjöfum, sem útigangsfólk og aðrir skjólstæðingar heilbrigðisverkefnisins Frú Ragnheiðar fá frá Rauða krossinum um jólin. Mynd/Rauði krossinn
Rauði krossinn heldur áfram að sinna margvíslegu hjálparstarfi um jólin. Meðal annars verður Konukot, athvarf samtakanna fyrir heimilislausar konur, opið allan sólarhringinn frá Þorláksmessu, í dag, fram á annan í jólum. Hefðbundinn opnunartími er frá 17 og fram til 10 daginn eftir. Athvarf Rauða Krossins fyrir fólk með geðraskanir, Vin, verður með skötuveislu í dag en þar verður lokað á aðfanga- og jóladag en annan í jólum verður boðið upp á samveru með sjálfboðaliðum á milli 14 og 17. Samtökin hafa þá einnig úthlutað fé úr Áfallasjóði sínum í fyrsta sinn í aðdraganda jóla. Nokkrir einstaklingar sem hafa orðið fyrir fjárhagslegum áföllum vegna sjúkdóma og slysa fengu stuðning úr sjóðnum. Til viðbótar hafa um fimm hundruð fengið fatakort til að nota í verslunum Rauða krossins. Frú Ragnheiður verður svo á ferðinni um jólin, að aðfangadegi undanskildum. „Margir skjólstæðingar verkefnisins eru heimilislausir og þeir fá jólapakka, sem starfsmenn og sjálfboðaliðar útbjuggu í aðdraganda jóla,“ segir í tilkynningu Rauða Krossins. Í dag verða svo sjálfboðaliðar Rauða krossins í Reykjavík á fjórum stöðum í miðbænum og bjóð aupp á rjúkandi kakó. „Velunnurum félagsins er boðið að styrkja starf félagsins, hvort sem er með peningum eða kortum,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Sjá meira