Pistorius ekki sleppt á föstudaginn Samúel Karl Ólason skrifar 19. ágúst 2015 14:06 Oscar Pistorius. Vísir/EPA
Dómsmálaráðuneyti Suður-Afríku hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðunin um að veita Oscar Pistorius reynslulausn hafi verið ótímabær og án lagastoða. Starfsmenn dómsmálaráðuneytisins könnuðu hvort tilefni væri til að koma í veg fyrir að Oscar Pistorius yrði sleppt snemma úr fangelsi. Pistorius var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa orðið kærustu sinni Reeva Steenkamp að bana á heimili þeirra. Hins vegar hefur hann einungis setið inni í tíu mánuði. Samkvæmt lögum á Pistorius möguleika á reynslulausn eftir að hafa afplánað einn sjötta af fangelsisdómi sínum. Hefði honum verið sleppt þyrfti hann þó að sitja út fangavist sína í stofufangelsi á heimili sínu. Ákvörðunin um hvort hann hljóti reynslulausn hefur verið send aftur til reynslulausnanefndarinnar. Kvennahreyfingar í landinu hafa mótmælt því að Pistorius hafi hlotið reynslulausn, samkvæmt BBC, og segja það hafa verið hneyksli og móðgun við þolendur heimilisofbeldis. Þá hafa foreldrar Steenkamp sagt að Pistorius hafi ekki setið inni nægilega lengi fyrir að taka mannslíf. Þar að hafa saksóknarar í Suður-Afríku lagt fram beiðni um að dómi Pistorius verði breytt í morð. Þá yrði hann að sitja inni í minnst 15 ár. Lögfræðingar hans hafa mánuð til að svara.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira