Lét lífið í sjóslysi á Vestfjörðum Snærós Sindradóttir skrifar 8. júlí 2015 07:00 Hraðbáturinn Sædís sést hér koma að bryggju í Bolungarvík í gærmorgun með sjómennina þrjá sem björguðust. vísir/hafþór gunnarsson „
Manni líður ekki vel. Aðstæðurnar voru hræðilegar,“ segir Jóhann Sigfússon, sjómaður á Ísafirði sem bjargaði þremur mönnum af kili Jóns Hákons BA-60 sem fórst í gærmorgun. Jóhann var á bátnum Mardísi sem kom fyrstur á vettvang, um klukkustund eftir að báturinn hvarf af skjá sjálfvirku tilkynningaskyldunnar. „Mennirnir voru búnir að bíða þarna lengi. Auðvitað er maður ánægður að hjálpa en manni líður ekki vel. Ég hef aldrei upplifað annað eins og þetta,“ segir Jóhann. Hann segir að sjómennirnir þrír, sem þá hafi verið búnir að missa frá sér einn mann, hafi verið hræddir, kaldir og hraktir. Skipverjar á Mardísi komu sjómönnunum þremur í hraðbát sem sigldi með þá inn til Bolungarvíkur. Sjálfir hófu þeir leit að manninum sem farið hafði í sjóinn og fundu hann látinn. Maðurinn sem lést var rúmlega sextugur. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru skipverjar að draga inn veiðarfæri bátsins þegar eitthvað gerðist sem olli því að bátnum hvolfdi. Veður var ágætt á svæðinu, lítil ölduhæð og hæg norðlæg átt.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira