Markaðstorg fyrir íslenska hönnun Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. júní 2015 11:00 Ásdís Rósa Þórðardóttir og Júlía Helgadóttir hyggjast markaðssetja verslunina erlendis á komandi mánuðum. fréttablaðið/valli
Svilkonurnar Ásdís Rósa Þórðardóttir og Júlía Helgadóttir opnuðu þann 1. júní síðastliðinn sölutorgið Kisinn.is á netinu og stefna að því að opna milliríkjaverslun í nóvember næstkomandi. „Pælingin er að reyna að fá þarna inn einyrkja og fyrirtæki, bæði atvinnufólk og áhugafólk og þarna ægi saman sprenglærðum hönnuðum og svo föndrandi ömmum,“ segir Ásdís Rósa Þórðardóttir. Markmiðið sé að upphefja vegsemd íslenskrar hönnunar. Vefinn kalla þær Ásdís og Júlía Kisann og eru þær þessa dagana að fá til liðs við sig framleiðendur sem hafa hug á að selja vörur sínar á netinu. „Og við teljum að þá komi einhver sjarmerandi og séríslensk blanda sem við ætlum að markaðssetja,“ segir Ásdís. Vörurnar verði markaðssettar um allan heim. Þær Ásdís Rósa og Júlía hafa farið víða að undanförnu til þess að kynna Kisann, í Reykjavík og Akureyri. Ásdís segir að þær hafi til að mynda eftir fremsta megni heimsótt allar föndurbúðir og garnbúðir sem þær hafi komist í tæri við og haft uppi á handverksfólki þar sem það hefur komið saman til að kynna því Kisann. Ásdís segir að þær muni halda þessu verkefni áfram í sumar. „Og leggjum þá land undir fót á húsbílum, með fjölskyldurnar okkar, og ætlum að þefa uppi allt handverk sem um getur á leiðinni,“ segir hún. Kisinn mun rukka framleiðendur um 100 krónur fyrir að setja myndir af hverri vörutegund, en rukka að auki 12,5 prósent álag á hverja vöru fyrir sig. Ásdís segir að hver framleiðandi muni sjá um að selja sína vöru. „Sá sem opnar búðina þarf að ákveða verðið og verðið þarf að ná yfir sendingarkostnað og skatt og fleira,“ segir hún.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira