Þrífst best með því að sprikla í byrjun dags Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. júní 2015 11:00 Edda Hermannsdóttir var aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins áður en hún hóf störf hjá Íslandsbanka. fréttablaðið/gva
Edda Hermannsdóttir hefur tekið við starfi samskiptastjóra Íslandsbanka. Hún mun bera ábyrgð á samskiptum og upplýsingagjöf bankans til fjölmiðla sem og samfélagsstefnu bankans. Hún hefur hagfræðipróf frá Háskóla Íslands. Edda situr að auki í stjórn Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Hún hóf störf þann 18. júní. Edda segir að það hafi ekki verið mjög langur aðdragandi að ráðningu hennar. „Þetta gerist allt frekar fljótt. Og í rauninni hafði ég aldrei hugsað mér að starfa í banka. Þar hefur verið unnið gott starf og greinilega gott teymi. Síðan finnst mér Birna auðvitað vera öflugur leiðtogi,“ segir Edda. Hún segir að uppbyggingin síðustu ár hafi gengið vel og það sé áberandi hversu mikil áhersla sé lögð á þessi mál, samskipta- og samfélagsmál. „En það var erfitt að yfirgefa Viðskiptablaðið enda bý ég yfir mikilli reynslu eftir þrjú ár þar með góðu fólki.“ Edda hefur fengist við ýmis störf að undanförnu. Auk þess að gegna stöðu aðstoðarritstjóra á Viðskiptablaðinu hefur hún verið spyrill í Gettu betur hjá Ríkisútvarpinu. Þá hefur hún kennt leikfimi í World Class á Seltjarnarnesi í sex ár, alltaf klukkan sex á morgnana, og hyggst gera það áfram. „Ég þrífst hvort eð er ekkert öðruvísi en að sprikla í byrjun dags,“ segir hún. Edda segist vera spennt að taka þátt í líflegu starfi innan bankans þar sem hlaupahópar séu allsráðandi um þessar mundir fyrir Reykjavíkurmaraþonið. Edda stefnir á að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í sumar ef tækifæri gefst, eins og hún hefur gert nokkrum sinnum. Í þetta sinn stefnir hún á hálfmaraþon. „Ég er tvisvar búin að hlaupa hálfmaraþon og svo hef ég nokkrum sinnum farið tíu. Ég gerði þau mistök í fyrra hálfmaraþoninu að drekka og borða lítið og koma orkulaus í mark. Í seinna hlaupinu var ég reynslunni ríkari og var síborðandi banana og súkkulaði alla leiðina enda kom ég í mark á frekar slökum tíma,“ segir Edda hlæjandi. Edda segir að hreyfing af hvers kyns tagi sé aðaláhugamálið sitt ásamt ferðalögum. „Í sumar stefni ég á að fara með einni bestu vinkonu minni í sólina í Barcelona með börnunum okkar. Mamma slæst síðan með í för hluta úr ferðinni svo þetta verður ekki amaleg stelpuferð. Síðan er bara áhugamálið að vera með vinum og börnunum. Þau eru auðvitað helsta áhugamálið og ná að halda mér við efnið alla daga enda skemmtilegasta fólk sem ég hef kynnst,“ segir Edda, en hún á tvö börn, Emilíu sem er sjö ára og Sigga sem er fjögurra ára.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira