Elvis Presley hefði orðið áttatíu ára gamall í dag Kjartan Atli Kjartansson skrifar 8. janúar 2015 08:20 Þrátt fyrir að Elvis hafi látist árið 1977 er hann enn á meðal söluhæstu tónlistarmanna heims. vísir/getty
Stórsöngvarinn Elvis Presley fæddist þann áttunda janúar árið 1935 og hefði því orðið áttræður í dag. Presley fæddist í borginni Tupelo í Mississippi-fylki í Bandaríkjunum. Hann lést 42 ára að aldri, í borginni Memphis í Tennessee.Elvis var mikið kyntákn.Vísir/GettyMikill fjöldi laga Presley þarf vart að kynna fyrir neinum, hann er ein skærasta stjarna tónlistarsögunnar, oft nefndur „konungur rokksins“. Tónlistarferill hans hófst fyrir alvöru árið 1954 þegar hann tók upp lag með upptökustjóranum Sam Phillips í Bandaríkjunum. Presley gerði hina svokölluðu „rockabilly“ tónlist mjög vinsæla. Óljóst er hversu mörg lög Presley gaf út, þau eru á bilinu 665 til 711. Mikill fjöldi breiðskífa og lagaPresley náðu efsta sæti á vinsældarlista víða um heim. Fyrsta platan sem náði fyrsta sæti Billboard-listans bandaríska kom út árið 1956 og sú síðasta sem náði efsta sætinu kom út árið 2002. Sú tölfræði varpar ljósi á hversu vinsæll Presley hefur verið í gegnum tíðina. Auk þess að syngja og leika rokklög fyrir almenning gegndi Presley herþjónustu. Hann var skráður í herinn árið 1958 og var þar til ársins 1960. Það vakti gríðarlega athygli víða um heim þegar hann gekk í herinn.Tímamótanna minnst Þessum tímamótum verður minnst næstu daga í heimaborg hans Memphis, í Tennessee og ekki síst á búgarðinum Graceland þar sem Elvis bjó síðustu æviárin. Á meðal þess sem stendur til að gera er að halda uppboð á munum úr dánarbúi söngvarans og þar á meðal er fyrsta ökuskírteini stjörnunnar og fyrsta upptakan sem hann gerði. Þrátt fyrir að Elvis hafi látist árið 1977 er hann enn á meðal söluhæstu tónlistarmanna heims.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Sjá meira