Listaverk á líkamann fyrir lífstíð Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar 16. apríl 2015 15:30 Ingó, Elísabet og Fjölnir vita allt um tattootískuna. Vísir
Tíska í húðflúri breytist eins og önnur tíska. Fyrir fimmtán árum þótti enginn maður með mönnum nema að skarta træbal-tattúi á handlegg eða neðst á mjóbakinu. Í dag hefur húðflúrið stækkað og sífellt fleiri fá sér ermi eða þekja allt bakið.Elísabet HilmarsdóttirElísabet Hilmarsdóttir starfsmaður Reykjavík INK „Mér finnst mikið hafa dregið úr því að það sé eitthvert eitt trend í gangi. Vissulega hafa þessi minni tattú verið vinsæl, eins og fjaðrirnar, „infinity“-merkið og mandölurnar, en það er einhvern veginn allt í gangi. Fólk er hins vegar að fá sér stærri flúr en áður til dæmis á lærin og handleggina eins og „sleeve“ eða álíka. Við erum líka mikið að fela gömul tattú, eins og træbal-tattú sem voru svo vinsæl,“ segir hún. Dregið hefur úr því að fólk fái sér flúr sem hefur einhverja merkingu. „Það þarf ekkert endilega að vera einhver meining eða tenging á bak við tattúið. Nú skiptir meira máli að þetta sé fallegt, og þetta er eiginlega eins og að fá sér listaverk á líkamann fyrir lífstíð.“Fjölnir Geir BragasonFjölnir Geir Bragason hjá Íslenzku húðflúrstofunni„Það koma vissulega tískusveiflur í þessu. Fyrir nokkrum árum var fólk hrætt við að fá sér stórt flúr, vegna þess að það var ekki viðurkennt af samfélaginu. Fólk byrjaði að fá sér lítil flúr og kom svo og bætti við. Í dag hins vegar kemur fólk inn og fer beint í „sleeve“ eða yfir allt bakið. Það er orðið mun viðurkenndara í samfélaginu að vera með stór flúr,“ segir Fjölnir, en hann hefur verið starfandi sem húðflúrari stanslaust síðan 1995. „Þetta hefur breyst svo mikið síðan það komu meiri listamenn inn í þennan bransa. Fyrir fimmtán árum var maður að gera bara træbal, Kínatákn eða stjörnumerki allan daginn, en þetta er miklu fjölbreyttara í dag. Tattúin sem voru stór hér áður eru eiginlega orðin litlu tattúin í dag.“ Ingólfur B. HeimissonIngólfur B. Heimisson Ingó á Bleksmiðjunni„Ég er eiginlega bara í því að gera ermar þessa dagana. Tattúin eru að stækka mikið og þeir sem fá sér ermi, enda oftar en ekki á því að tengja allan hringinn. Svo fá þeir sér hina ermina líka og svo jafnvel bak og bringu líka,“ segir Ingó. Hann hefur starfað sem húðflúrari síðan 1999. „Hérna áður var maður næstum eingöngu að gera træbal-tattú eða armbönd í kringum handlegginn. Nú er fólk að koma meira með hugmyndir til okkar sem við teiknum svo upp í sameiningu.“ Hann segist ekki hafa orðið var við einhverja ákveðna tísku í húðflúri undanfarið. „Það er allur gangur á því hvað er vinsælt, en þessi „underboob“-tattú hjá stelpunum og mandölur hafa samt verið að aukast undanfarið.“
Mest lesið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira