Unglingsstelpur eru aðalmálið Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 2. apríl 2015 09:00 Ert þú unglingsstelpan sem Ásrún leitar að fyrir dansverkið Teenage Girls? Vísir/Vilhelm „
Þetta er svo kúl aldur, þær eru svona alveg í einhverju fullkomnu millibilsástandi. Eru meðvitaðar en langt frá því að vera fullorðnar og einhvern veginn ekki enn þá börn,“ segir danshöfundurinn og dansarinn Ásrún Magnúsdóttir, sem vinnur nú að nýju dansverki og leitar að unglingsstelpum sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu. Verkið ber vinnuheitið Teenage Girls og að sögn höfundarins fjallar það um að vera unglingsstelpa í dag, en sá hópur samfélagsins veitir henni mikinn innblástur. „Það er aðallega af því að ég hef verið að kenna unglingsstelpum í allan vetur og hef verið svo inspíreruð af þeim. Svo er The Virgin Suicides ein uppáhaldsmyndin mín.“ Hún segir tengslin við unglingsstelpur þó aðallega myndast af því að hún hafi sjálf verið ein slík á ákveðnum tíma í sínu lífi og langi til þess að gefa þeim rödd. „Þótt ég sé enginn sérfræðingur í unglingsstelpum þá hef ég verið slík sjálf og það erum við sem höfum verið það og þær sem eru það í dag sem erum eina fólkið sem veit hvernig það er,“ segir hún hress. Að undanförnu hefur Ásrún undirbúið verkefnið með því að skrifa niður ýmiss konar minningar frá sínum unglingsárum og segir það áhugavert hversu mörg atvik og aðstæður séu sameiginleg upplifun allra þeirra sem gengið hafa í gegnum þetta tímabil. „Ég hef verið að skrifa alls konar minningar frá unglingsárunum og svo las ég þetta upp fyrir hóp af fólki og það voru mjög margar fyrrverandi unglingsstelpur sem tengdu við það,“ segir Ásrún hress og bætir við að hún muni mögulega nota eitthvað af eigin upplifunum og minningum í verkið, en hún hefur einnig verið í samstarfi við sumarbúðaverkefnið Stelpur rokka. „Planið er að búa til eina risastóra unglingsstelpuhljómsveit sem dansar, syngur, spilar og performerar, allt í senn.“ Þær stelpur og foreldrar þeirra sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefni Ásrúnar geta sent henni póst á netfangið asrunm@gmail.com. Engin krafa er gerð á reynslu af því að dansa, leika eða spila á hljóðfæri, einungis áhugi á því að koma fram.
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Lífið Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Lífið Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Lífið Fleiri fréttir Fagnarlæti yfirgnæfðu baulið en óvíst hvaðan þau komu Baráttan um jólagestina hafin Börn í Laugardal fögnuðu fjölbreytileikanum í árlegri gleðigöngu Einhleypir auglýstir á óhefðbundnum stefnumótaviðburði Segist ástæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“ Þórhildur greinir frá kyninu Bieber segist ekki á meðal þeirra sem Diddy braut á Koníakstofa á þakinu og stórbrotið útsýni Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið Sjá meira