Fyrrverandi kærasti dæmdur í sextíu daga fangelsi 2. apríl 2015 08:00 Katrín Lilja treysti fyrrverandi kærasta sínum sem braut á henni með því að birta af henni nektarmyndir. „
Takk fyrir að halda fram hjá mér sæta.“ Þetta stóð við nektarmyndir af Katrínu Lilju Sigurjónsdóttur sem fyrrverandi kærasti hennar birti af henni á Facebook í febrúar í fyrra. Katrín Lilja er þolandi hefndarkláms og varð eðlilega fyrir miklu áfalli en er óðum að ná fyrri styrk. Sá sem braut á henni var í síðustu viku dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi vegna málsins og gert að borga henni 250 þúsund krónur í miskabætur.Skjáskot af nektarmyndum „Við vorum búin að vera saman í eitt og hálft ár og ég sendi honum þessar myndir sjálf. Ég sá þær aldrei sjálf á netinu, heldur skjáskot af þeim daginn eftir. Þær höfðu þó verið það lengi á netinu að nægur tími gafst til að taka skjáskot af þeim. Skjáskotin sem ég sá voru tekin tæpum tíu mínútum eftir að myndirnar voru settar á netið.“Erfitt að segja mömmu Katrín var á leiklistaræfingu með vinum sínum þegar hún frétti af myndunum á netinu. Ég lét ekki á neinu bera og fór afsíðis þar sem vinkona mín sýndi mér skjáskot. Það sást allt á þessum myndum, segir Katrín Lilja en myndefnið var kynfæri hennar og rass. Ég tók sjálf þessar myndir. Við vorum búin að vera saman í eitt og hálft ár. Við höfðum búið saman, það var traust á milli okkar,“ segir hún og bætir því við að hún hafi beðið hann um að eyða myndunum. Henni fannst erfiðast að segja móður sinni fréttirnar. „Mamma sótti mig á leiklistaræfingu, ég vildi ekki þurfa að segja móður minni þetta og fannst það erfitt. En þegar því var lokið var auðveldara að stíga næstu skref. Mamma hafði strax samband við lögregluna. Ég fann að ég hafði fullan stuðning hennar og allrar fjölskyldunnar. Daginn eftir fór ég því á lögreglustöðina og leyfði lögreglumanni að skoða símann minn.“Neitaði fyrst Í fyrstu neitaði pilturinn að hafa sett myndirnar á netið og sagði vin sinn hafa gert það. „Hann dró það þó til baka þegar málið var komið til lögreglu og hefur vafalaust óttast að allir vinir hans yrðu yfirheyrðir. Ég var yfirheyrð af lögreglumanni sem sérhæfir sig í kynferðisbrotum og fór í viðtal til félagsráðgjafa. Mamma var hjálpleg. Hún hringdi strax í Stígamót. Ég fékk mikla aðstoð þaðan á jafningjagrundvelli sem hjálpaði mér að vísa burtu skömminni. Hún vill ræða um reynslu sína til að aðstoða aðra þolendur hefndarkláms. „Ég veit að þó að ég hafi tekið myndirnar sjálf, þá er ekkert sem gefur öðrum leyfi til að setja þær á netið eða skoða þær á netinu. Þetta eru persónulegar heimildir sem hann hafði um mig og hefur ekki rétt til að deila. Það er mikilvægt að allir viti þetta. Mig langar líka til þess að stelpur viti að það fæst góð hjálp hjá Stígamótum. Hjálpin þaðan skipti mig miklu máli. Það er algengt að stelpur haldi að þetta hverfi, það er misskilningur. Það þarf að vinna í þessu.“Baktal frá næstu bæjum Hún segist hafa ákveðið að láta ekki reynsluna buga sig. „Ég er búin að þroskast og hef fært mig nær vinum og fjölskyldu. Það skiptir máli að eiga gott bakland í vinum og fjölskyldu þegar maður verður fyrir svona áfalli. Það voru ótrúlega margir sem hringdu í mig til að tala við mig um þetta að fyrra bragði. Vinkonur mínar voru duglegar að hringja, þær vildu koma því á hreint að þær fyrirlitu mig ekki fyrir þetta. Mér fannst það gott.“ Katrín Lilja er frá Neskaupstað og hann er frá Seyðisfirði. Þótt hún sé örugg í eigin bæjarfélagi segist hún verða vör við illar augnagotur og baktal þegar hún kemur til Egilsstaða. „Hann er frá Seyðisfirði og þegar ég fór til Egilsstaða fékk ég ekki fallegt augnaráð og fann fyrir því að fólki finnst að ég hefði ekki átt að taka þessar myndir. En ég læt það ekki buga mig.“
Mest lesið Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Erlent Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Innlent Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Innlent Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Innlent Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Innlent Segir Kúbu næsta á eftir Íran Erlent Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Erlent Fleiri fréttir Saka stjórnvöld um að tefja endurreisn Grindavíkur Óvenjuleg fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Mótmæli við Austurvöll Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Hátt á þriðju milljón á mánuði Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Sættust um bikbreiðuna Búvörusamningar framlengdir um ár Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki Sjá meira