Leggur af stað í sitt fyrsta tónleikaferðalag um landið Gunnar Leó Pálsson skrifar 8. janúar 2015 11:00 Herbert Guðmundsson, fer ásamt Hirti Howser og syni sínum Guðmundi í tónleikaferðalag í febrúar. mynd/Pétur Friðgeirsson „
Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer í svona formlegt tónleikaferðalag um landið,“ segir tónlistarmaðurinn Herbert Guðmundsson. Hann skipuleggur nú af kappi heljarinnar tónleikaferð um landið og gerir ráð fyrir að leggja í hann um miðjan febrúar. „Þá er veðrið farið að skána og svona,“ bætir Herbert við. Tónleikarnir eiga að vera þægilegir og í nánd við áhorfendur. „Þetta verður svona „klósöpp“ fílingur.“ Herbert gerir ráð fyrir að tónleikarnir geti verið um fimmtán til tuttugu talsins, út um allt land. „Það er ekki alveg komið á hreint hversu margir tónleikar þetta verða. Draumurinn er svo að enda á einum á stórum tónleikum.“ Stefnt er svo að því að nota innslag frá tónleikunum í heimildarmyndina sem verið að vinna um Herbert en hún er vel á veg komin en það eru þeir Friðrik Grétarsson og Ómar Sverrisson sem vinna að myndinni. Herbert hefur farið um landið áður en ekki með þessum hætti. „Ég fór með hljómsveitunum Tilveru og Pelican á þessa stærri staði eins og Akureyri, Ísafjörð, Egilsstaði og svoleiðis á sínum tíma en núna ætla ég líka að heimsækja þessa minni staði,“ útskýrir Herbert. Þá fór hann einnig í ferðir um landið þegar hann seldi bækur á árum áður. „Ég hef ekki selt bækur síðan fyrir hrun en ég les samt mikið af bókum sjálfur.“ Hann ætlar þó að taka geisladiskana með sér í ferðalagið til að selja, en þeir eru þó ekki það eina sem hann tekur með sér í ferðalagið, því Hjörtur Howser og yngsti sonur Herberts, Guðmundur, fara einnig með. „Hjörtur er á hljómborði og svo er sonur minn á kassagítar og raddar, það er svo gaman að nálgast lögin svona „unplugged“. Við Hjörtur höfum verið að spila slatta saman tveir og það hefur komið vel út. Gaman að nálgast lögin svona.“ Þeir félagar ætla fara saman á einum bíl með lítið hljóðkerfi og er tilhlökkunin mikil í þeim félögum.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira