Dumplings ómissandi áramótaréttur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 22. febrúar 2015 10:00 Vertinn Wenli Wang segir hefð fyrir dumplings á hlaðborðum í tilefni áramótanna. Vísir/GVA „
Stórfjölskyldan hér á landi kemur alltaf saman á þessum tíma og fagnar áramótunum með veislu,“ segir Wenli Wang, vert á Fönix á Bíldshöfða 12 í Reykjavík. „Þó er allt með einfaldara sniði en úti í Kína. Þar standa hátíðarhöldin yfir í fimmtán daga og þeim fylgja ótal siðir og hefðir.“ Wenli segir hátíðarhöldin geta breyst örlítið eftir þema dýrsins en í heild haldist þau á mjög svipuðum nótum, alltaf sé mikið fjör og gleði.Rétt Handtök Wenli segir best að forma hvern hálfmána í hendinni.Nú er það ár geitarinnar sem er runnið upp. Wenli segir það eiga að tákna tíma stöðugleika, umhyggju og friðar. „Í þeim boðskap sem fylgir kínverska dýrahringum er talið að börn sem fæðast á ári geitarinnar séu skapandi og góðhjörtuð og líti alltaf eftir öðrum,“ útskýrir hún. Eitt af því sem Wenli segir ómissandi í áramótaveislum er rétturinn dumplings. „Við eldum marga mismunandi rétti en dumplings er það sem einkennir hátíðahöldin,“ segir hún. „Það er líka siður að allir í fjölskyldunni búi það til saman.“ Wenli segir dumplings einn vinsælasta réttinn á Fönix, enda sé hann alltaf búinn til frá grunni, meira að segja sé kjötið hakkað á staðnum.Innpökkun Nauðsynlegt er að brjóta hálfmánann vel saman.Dumplings Fyrir 25 dumplings Deigið: 200 g hveiti 100 ml vatn Fylling: 300 g svínahakk ¼ haus kínakál, smátt saxað (u.þ.b. 200 g) 3 msk. létt sojasósa 1 tsk. grænmetiskraftur 1 msk. sesamolía 1 tsk. ferskt engifer smátt saxað 1 msk. blaðlaukur smátt saxað 50 ml vatn Salt eftir smekk Sesamfræ Vorlaukurdumplings Einn vinsælasti rétturinn á borðum Fönix.Hrærið saman hveiti og vatn og hnoðið vel. Látið deigið standa á heitum stað í 30 mínútur. Blandið saman svínahakki, vatni og blaðlauk og hrærið vel. Bætið sojasósu, grænmetiskrafti, sesamolíu, salti og engifer vel saman við. Dreifið hveiti á hreint borð og hnoðið deigið og skiptið því í 25 litla bolta. Notið lítið kökukefli til að fletja hvern deigbolta í litla köku á hveitistráðu borði. Setjið matskeið af fyllingu í hverja köku og brjótið deigið saman til að mynda hálfmána. Hitið stóra pönnu með nokkrum matskeiðum af olíu. Raðið dumplings varlega í pönnuna og hellið 50 ml af vatni yfir. Setið lok yfir pönnuna og steikið á miðlungshita í um 10 mínútur. Raðið á disk og stráið sesamfræjum og söxuðum vorlauk yfir. Berið fram með sojasósu eða hrísgrjónaediki.
Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira