Lífið

Salka Sól ekki sátt við Eirík: „Mér fannst þetta nú frekar lélegt"

Adda Soffía Ingólfsdóttir skrifar
Eiríkur og Salka Sól
Eiríkur og Salka Sól Vísir
„Mér fannst þetta nú frekar lélegt,“ segir söng-og leikkonan Salka Sól Eyfeld, en hún birti færslu á Twitter í byrjun mánaðar þar sem hún segist halda að Eiríkur Jónsson hafi platað sig í viðtal hjá Séð og heyrt.

„Það hringdi í mig stelpa þaðan og bauð mér viðtal sem ég afþakkaði pent. Fimm mínútum síðar hringir Eiríkur sjálfur og byrjar að spurja mig mjög handahófskenndra spurninga. Þá segi ég við hann að mér líði nú eins og hann sé að plata mig í viðtal, sem hann neitar,“ segir Salka. 

Allt kom fyrir ekki og endaði hún á forsíðu Séð og heyrt með stúdentshúfu á höfðinu. 

Salka hefur í nógu að snúast þessa dagana en ásamt því að vera einn af þremur kynnum í Eurovision þá er hún að leika í þáttaröðinni Ófærð í leikstjórn Baltasars Kormáks.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×