Taka ástfóstri við þáttaraðir Gyða Lóa Ólafsdóttir og Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 29. janúar 2015 11:30
Margir taka ástfóstri við ákveðnar þáttaraðir eða sápuóperur og fylgjast með þeim ár eftir ár, án þess að þora að viðurkenna það. Glæstar vonir, Nágrannar og Survivor eru dæmi um slíkar þáttaraðir sem framleiddar hafa verið í áratugi og eiga enn dygga aðdáendur.Guðríður bloggaði um Bold an the Beautiful á tímabili.Ímynda mér að höfundarnir séu á sýru Guðríður Haraldsdóttir, Gurrí, aðstoðarritstjóri Vikunnar og rithöfundur, fylgdist með Glæstum vonum (Bold and the Beautiful) í nokkur ár og bloggaði á tímabili um þættina. „Ég er búin að vera í smá pásu núna en það gerir ekkert til þó maður sleppi úr nokkrum þáttum,“ segir Gurrí. Hún fór að fylgjast með þáttunum fyrir tilviljun. „Systir mín bað mig að taka upp vikuskammt á VHS fyrir sig í kringum 2000. Ég horfði þá á þetta og skildi ekkert. Af hverju var þessi ljóshærða brjáluð við dökkhærðu og öfugt? Við systurnar fórum svo í bíltúr út á land og í þeirri ferð sagði hún mér alla forsöguna,“ segir Gurrí og hlær. „Ég fór svo að blogga, eða bolda eins og ég kallaði það, um þættina og það varð allt vitlaust. Þá komst ég að því að það voru ekki bara konur í fæðingarorlofi sem horfðu heldur sjómenn og lögfræðingar líka,“ segir hún. Hún segist ekki horfa mikið á Glæstar vonir, en kunni enn skil á þeim. „Ég ímynda mér reyndar að höfundarnir séu á sýru. Ég mun þó um ókomna tíð fylgjast með framvindu Forrester-fjölskyldunnar, þar sem virðist vera ein lögregla og Bridget sem fann upp lyf við krabbameini fór aftur í fatahönnun, þó að mamma hennar væri búin að stinga undan henni tvisvar.“Einn af uppáhalds karakterum Bryndísar er Toadie.Vísir/GVAVonar að Dee snúi aftur Bryndís Freyja Pedersen, meistaranemi í hagnýtri þjóðfræði, fór óvart að fylgjast með Nágrönnum fyrir fimmtán árum. „Bróðir minn var alltaf að horfa á þetta og auðvitað hermdi ég eftir honum og fór að horfa. Svo varð þetta bara einhver vani hjá mér,“ segir Bryndís Freyja. „Þegar ég var í grunnskóla bjó ég rétt hjá skólanum og hljóp alltaf heim í hádeginu og horfði,“ segir hún og hlær. „Ég bjó í Svíþjóð í tvö og hálft ár, en þar eru þættirnir ekki sýndir svo ég þurfti að taka pásu. Svo datt ég aftur inn í þetta þegar ég kom heim,“ bætir hún við. Bryndís þolir ekki þegar er skipt um leikara í þáttunum. „Ég man þegar það kom ný leikkona fyrir Libby og það var bara ekki að virka,“ segir Bryndís og hlær. Hún var ein af þeim sem hittu Alan Fletcher, sem leikur lækninn fjölhæfa Karl Kennedy, þegar hann kom hingað til lands fyrir skömmu. „Hann var ótrúlega vinalegur enda greinilega vanur að hitta aðdáendur.“ Bryndís segir að Toadie eða Kartan sé einn af uppáhaldskarakterunum sínum. „Ég er reyndar alltaf að vona að konan hans, Dee, sem átti að hafa dáið komi aftur og sé kannski minnislaus. Það væri eitthvað.“ Valdimar hefur fylgst með Survivor síðan raunveruleikaþáttaröðin hóf göngu sína.Svo slæmt að það verður gott Valdimar Víðisson, skólastjóri Öldutúnsskóla, hefur fylgst með raunveruleikaþáttaröðinni Survivor síðan hún hóf göngu sína fyrir fjórtán árum. „Ég festist strax í þessu. Það er bara eitthvað við þessa þætti, veit ekki alveg hvernig á að lýsa því,“ segir Valdimar hress og bætir við: „Þetta er það slæmt að það verður gott.“ Vinahópur Valdimars fylgdist í upphafi saman með raunveruleikaþáttunum en í dag er hann einn eftir. „Ég er einn eftir af vinahópnum. Við byrjuðum allir sjö í þessu þegar þetta byrjaði á Íslandi.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Valdimar fylgist með þáttaseríu í langan tíma. „Ég hef margoft sagt að ég ætli að hætta. Ég horfði á Nágranna í tuttugu ár og náði að slíta mig frá því.“ Valdimar segir stóran hluta af skemmtuninni vera að velja keppanda til þess að halda með. „Maður reynir að spotta út fljótlega hver er líklegastur til þess að komast langt.“
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Sjá meira