Pabba vantaði alltaf Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. janúar 2015 16:30 "Ég byrjaði ungur að gera ýmsa hluti sjálfur og fullorðnaðist snemma,“ segir Haukur, sem verður meðal þeirra sem taka til máls í Víkinni í kvöld. Vísir/Andri Marinó „
Mér er efnið hugleikið. Það tengist æskuminningum mínum því ég var fimm ára þegar ég missti föður minn í sjóslysi. Sjö heimilisfeður fórust frá Dalvík sama dag. Það var mikil blóðtaka,“ segir Haukur Sigvaldason smiður um dagskrá Íslenska vitafélagsins um sjóslys við Íslandsstrendur sem fram fer í Víkinni, sjóminjasafni við Grandagarð, í kvöld, miðvikudag, og hefst klukkan 20. Sigvaldi, faðir Hauks, fór í róður með bróður sínum, Gunnari, á Val EA 9. apríl 1963. Þeir voru á línu fram af Hvalvatnsfirði þegar ofsaveður brast á mjög snögglega. Báturinn fórst og Gunnar fór niður með honum en Sigvaldi náðist um borð í Esjuna, án lífsmarks, hann var úrskurðaður látinn á Sjúkrahúsi Akureyrar undir kvöld. Sama dag fórst Hafþór EA frá Dalvík. Þrettán börn urðu föðurlaus í plássinu í einu vetfangi. „Ég man þegar mömmu var tilkynnt andlát pabba. Bróðir hennar kom með lækninum heim og dró sig svo í hlé meðan læknirinn talaði við mömmu en ég var dinglandi við lærið á henni, auðvitað talinn óviti. Ég veit að læknirinn bauð henni sprautu til að deyfa sársaukann og hún gæti sofið, en hún afþakkaði með þeim orðum að hún þyrfti að vakna upp til barnanna sinna. Ég var yngstur af þremur systkinum. Hin voru níu og tólf ára,“ lýsir Haukur sem segir líf sitt vissulega hafa breyst við slysið. „Mamma fór fljótlega að vinna utan heimilis en mínar aðstæður voru góðar miðað við margra því móðir hennar og þrjú systkini bjuggu á hæðinni fyrir ofan okkur og mikill samgangur var á milli. Ég hafði öruggt skjól en samt var engin tilfinningaúrvinnsla og pabba vantaði alltaf. Ég byrjaði ungur að gera ýmsa hluti sjálfur og fullorðnaðist snemma.“ Sama ár og Haukur missti föður sinn, 1963, fórust 55 íslenskir sjómenn. Fyrstu þrír fjórðungar tuttugustu aldarinnar voru varðaðir sjóslysum. Steinar J. Lúðvíksson, blaðamaður og rithöfundur, skrifaði margar bækur um þá atburði undir heitinu Þrautgóðir á raunastund. Björgunar- og sjóslysasaga Íslands. Hann verður líka með fyrirlestur í kvöld í Víkinni. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Tölur yfir þá sem hafið tók frá 1900 til 1974 1900 – 1909 fórust 666 1910 – 1919 fórust 567 1920 – 1929 fórust 637 1930 – 1939 fórust 426 1940 – 1949 fórust 532 1950 – 1959 fórust 301 1960 – 1969 fórust 290 1970 – 1974 fórust 153
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Sjá meira