Söfnuðu tæpri hálfri milljón Freyr Bjarnason skrifar 2. janúar 2015 09:30 DJ Víkingur og félagi hans Nökkvi Fjalar söfnuðu um 450 þúsund krónum til góðgerðarmála í desember. Hér eru þeir með söfnunarbaukinn. Fréttablaðið/Valli
Plötusnúðurinn Víkingur Heiðar Arnórsson og félagi hans Nökkvi Fjalar Orrason söfnuðu um 450 þúsund krónum, eða tæpri hálfri milljón, til Mæðrastyrksnefndar með því að gefa vinnu sína fyrir að troða upp í desembermánuði. „Þetta er mikill tekjumissir fyrir okkur en samt alveg þess virði út af málstaðnum. Þrátt fyrir þennan tekjumissi er hann bara dropi í hafið miðað við hversu margir eiga ekki fyrir jólasteikinni og pökkunum fyrir jólin,“ segir Víkingur, betur þekktur sem DJ Víkingur. Alls sneri DJ Víkingur skífum sex kvöld í desember, eða fjórum sinnum á skemmtistaðnum Austur, einu sinni á Akranesi og einu sinni á Selfossi. Einnig gaf hann vinnu sína þegar hann aðstoðaði þýska tónlistarmanninn Claptone er hann spilaði í Hafnarhúsinu 12. desember. Samtals söfnuðust um 300 þúsund krónur á giggunum, auk þess sem Coca Cola lét hundrað þúsund krónur af hendi rakna til þessa góða málefnis. Söfnunarbaukur var sömuleiðis látinn ganga á stöðunum og söfnuðust í hann um 50 þúsund krónur. Strákarnir settu einnig í gang uppboð á DJ-síðu Víkings á Facebook þar sem fólk gat boðið í þá til að fá þá til að skemmta. Það gekk þó ekki sem skyldi. „Menn eru óvanir þessu. Það hefði verið fínt ef það hefði gengið því þá hefði maður getað safnað meiru. Þetta snýst allt um upphæðina,“ segir Víkingur, sem fékk hugmyndina að söfnuninni ásamt besta vini sínum, Brynjari Valdimarssyni, eins og áður hefur komið fram. Hann féll skyndilega frá í byrjun desember og var söfnunin tileinkuð honum. „Hann var þvílíkt ánægður með þessa hugmynd. Hann hugsaði vel um vini sína og hugsaði fallega til fólks. Hann hefði verið ánægður með hvernig söfnunin gekk.“ Þó svo að desembermánuður sé liðinn getur fólk enn tekið þátt í söfnuninni og lagt inn á reikninginn 0130-05-064872 og kt: 190385-2999. Aðspurður segist Víkingur stefna á að gera söfnunina að árlegum viðburði. „Ég er að spá í að gera þetta á hverju ári, taka allan desember í þetta og byrja að auglýsa fyrr. Mér er sama þótt ég sé að spila á hverjum einasta degi í desember, til dæmis í fatabúðum á daginn, svo lengi sem það kemur fín upphæð út úr því. Gaman væri að enda árið á stóru áramótagóðgerðarballi,“ segir Víkingur, sem var skemmtanastjóri á Broadway í fimm ár og hefur því góða reynslu af áramótaböllum þaðan.
Mest lesið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira