Um kirkjuferðir barna Jakob Ágúst Hjálmarsson skrifar 16. desember 2015 00:00 Athugasemd til Halldórs Auðar Svanssonar Fbl. 11.12. Mig langar til að benda þér á aðra nálgun viðfangsefnisins sem mér finnst vera í senn lýðræðislegri og frjálslegri en sú sem Píratar fylgja. Ástæðan er sú að mér sýnist sú leið lenda í ógöngum sem á að forða fólki frá þeim óþægindum að þurfa að velja í jafn viðkvæmum málum sem trúarefnum. Nú er það aldrei nema satt að fátt skilgreinir samfélagshópa meir en trúarbrögð. Þau skapa grunn að almennum viðhorfum. Þess vegna sýnast svo mörg átök í heiminum vera á milli trúarsamfélaga þegar þau eru í raun hagsmunabarátta menningarheilda. Við þurfum því allra mest á umburðarlyndi að halda, þurfum öll að læra það og ættum að álíta það eðlilegt að þjóðfélagshópar séu á ýmsan hátt ólíkir og eigi rétt á sínu félagslífi svo fremi sem það meiðir engan. Baráttan fyrir jöfnuði helst svo í hendur við þetta og stefnir að sömu tækifærum fyrir alla. Þetta verður fyrst að kenna í skólanum og það verður ekki gert með því að fela fjölbreytnina. Nær er að hampa henni og hylla ólíka menningartjáningu. Jólahald í okkar menningu er aðeins kristið. Vissulega er mönnum frjálst að nota orðið eins og það vill, en við erum að tala um Kristsmessu sem á sér djúpar rætur í samfélaginu og menningu þjóðarinnar. Við gerum engum greiða með því að reyna að afhelga hana, búa til einhverja útþynnta súpu sem allir geti etið og jólasveinajól Þjóðminjasafnsins eru ekkert hlutlausari í sjálfu sér en litlujólin í kirkjunni.Þeir fari í kirkju sem vilja Náttúrujólin, vetrarsólhvörfin eru einu hlutlausu jólin í raun og bæra streng í hverju hjarta. Dagamun geta menn gert sér hvenær sem er og ekki óeðlilegt að trúlaust fólk noti jólin til þess þar sem almennir frídagar bjóða upp á það. En skólinn, skólayfirvöld og stjórnvöld ættu að hylla fjölmenninguna og einnig með þeim hætti að gefa kristnum rúm fyrir sitt jólahald og öðrum trúarhópum fyrir sínar hátíðir, hvort sem þeir eru margir eða fáir. Kennum börnunum að bera virðingu fyrir og telja hið sjálfsagðasta mál að það hafi ekki allir sömu hátíðir, hátíðasiði og menningartjáningu yfirleitt – og það sé bara fínt. Þannig fara þeir í kirkjuferð sem það vilja, aðrir láta það vera en fara í staðinn eitthvað annað, jafnvel á öðrum tíma árs. Sumir fara ekki neitt. Valið þarf þá ekki að vera nein kvöl, heldur eðlileg hegðun menningarheildar hvort hún er stór eða smá. Þjóðkirkjan þarf þá heldur ekki að vera tekin fyrir sérstaklega né á hana eytt svo mörgum orðum sem þú virðist hafa þurft að gera í grein þinni. Ef við leyfum frjálsræðinu og fjölbreytninni að ríkja lendum við síst í vandræðum, en þegar við ætlum að fara að stjórna svona hegðun með tilskipunum lendum við í vanda og af því er raunar kunnuglegt óbragð sem kirkjan fyrir sitt leyti vill öllum fremur venja sig af. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 23.8.2025 Halldór Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Heildstætt heilbrigðiskerfi – hagur okkar allra Alma D. Möller skrifar Skoðun Vanþekking eða vísvitandi blekkingar? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun „I believe the children are our future…“ Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Mikilvægi félagasamtaka og magnað maraþon Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar