Sjötíu prósent Grikkja styðja samkomulag við lánardrottna Atli Ísleifsson skrifar 18. júlí 2015 17:59 Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands. Vísir/AFP
Sjö af hverjum tíu Grikkjum styðja að Grikklandsstjórn semji um frekari neyðarlán við lánardrottna sína, jafnvel þó slíkt feli í sér harðar aðhaldsaðgerðir. Þetta eru niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Palmos Analysis fyrir dagblaðið Efimerida ton Syntakton og greint var frá í dag. Könnunin sýnir að einungis 24 prósent Grikkja myndu kjósa að yfirgefa evrusamstarfið, í stað þess að ná samkomulagi við Evrópusambandið, Evrópska seðlabankann og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. 73 prósent aðspurðra sögðust vilja vera áfram með evruna, þar á meðal 66 prósent stuðningsmanna stjórnarflokksins Syriza. Alls sagðist fimmtungur vilja taka upp grísku drökmuna á nýjan leik, en einungis 26 prósent stuðningsmanna Syriza sögðust vilja fara þá leið. Könnunin sýndi jafnframt að stuðningur við stjórnarflokkinn Syriza væri enn mikill, þar sem 42,5 prósent sögðust munu kjósa hann ef gengið yrði til kosninga nú. 21,5 prósent sögðust styðja Nýtt lýðræði, átta prósent To Potami, 6,5 prósent Gullna dögun, sex prósent PASOK, fimm prósent KKE og þrjú prósent Sjálfstæða Grikki. Sjö prósent aðspurðra sögðust styðja aðra flokka.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira