Það sem við vitum um bankaránið í Borgartúni Bjarki Ármannsson skrifar 30. desember 2015 20:21 Lögregla gefur ekki upp hvað var verið að gera í húsinu við Stigahlíð 20 fyrr í kvöld. Vísir/Ernir
Heldur hefur verið dregið úr leitinni að grunuðum bankaræningjum í Öskjuhlíðinni, sem staðið hefur yfir frá því á þriðja tímanum. Mannanna tveggja er áfram leitað en þeir eru grunaðir um að hafa rænt útibú Landsbankans við Borgartún fyrr í dag. Ránið átti sér stað skömmu fyrir klukkan hálftvö í dag. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu mikla fjármuni mennirnir höfðu á brott með sér en Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, hefur sagt þá óverulega. Fjöldi viðskiptavina og starfsfólks var í útibúninu. Vitni að ráninu segir ræningjana hafa verið með læti og hrist gjaldkerann á meðan ráninu stóð.Lögreglan hefur deilt myndum af hinum grunuðu, sem virðast vopnaðir hnífi og skammbyssu.Útibúi Landsbankans var lokað eftir ránið og verður áfram lokað á morgun. Þá var viðskiptavinum og starfsfólki boðin áfallahjálp. Engin slys urðu á fólki. Lögreglan hefur deilt myndum af hinum grunuðu, sem virðast vopnaðir hnífi og skammbyssu. Óskar hún eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á þá.Tveir hafa verið handteknir í tengslum við málið en þeir eru þó ekki grunaðir um að hafa rænt bankann. Samkvæmt nýjustu upplýsingum frá Kristjáni Ólafi Guðnasyni, yfirlögregluþjóni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er ekki búið að handtaka fleiri. Mennirnir frömdu ránið á sendiferðabíl Hverafoldar bakarís, sem stolið var í Hafnarfirði um klukkan hálfellefu í morgun. Bíllinn fannst svo mannlaus í Barmahlíð í Reykjavík eftir bankaránið.Umfangsmikil leit lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Öskjuhlíð og í Hlíðahverfinu hófst á þriðja tímanum og var þyrla Landhelgisgæslunnar meðal annars notuð við leitina.Vísir/VilhelmUmfangsmikil leit lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra í Öskjuhlíð og í Hlíðahverfinu hófst á þriðja tímanum og var þyrla Landhelgisgæslunnar meðal annars notuð við leitina. Lögregla girti af aðkomu að fjölbýlishúsi við Stigahlíð 20 en fólk gat þó farið inn og út úr húsinu. Lögregla gefur ekki upp hvað var verið að gera í húsinu né hvort mennirnir tveir hafi verið handteknir þar. Lítið er hægt að gefa upp um rannsókn lögreglu að svo stöddu. Kristján Ólafur segir það verða að koma í ljós hvort áfram verði leitað í nótt.
Tengdar fréttir Vitni lýsir ráninu í Landsbankanum Bankaræningjarnir ógnuðu starfsfólki og viðskiptavinum bankans með vopnum. Inni í bankanum voru meðal annars börn. 30. desember 2015 18:44 Svona útveguðu ræningjarnir sér flóttabíl: Óku um með brauð og berlínarbollur aftur í Jarek Kuczynski, eigandi Hverafoldar bakarís, segir að bílnum hafi verið stolið í Hafnarfirði í morgun. 30. desember 2015 19:30 „Starfsfólk brást rétt við í erfiðum aðstæðum“ Mennirnir sem frömdu vopnað rán í Landsbankanum í dag höfðu á brott með sér einhverja fjármuni en upphæðin er óveruleg. 30. desember 2015 15:26 Tveir handteknir vegna bankaránsins Umfangsmikil leit stendur enn yfir í Hlíðunum. 30. desember 2015 18:10 Þetta eru mennirnir sem rændu bankann Lögreglan biður um aðstoð almennings við að bera kennsl á ræningjana. 30. desember 2015 14:52 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Sjá meira
Vitni lýsir ráninu í Landsbankanum Bankaræningjarnir ógnuðu starfsfólki og viðskiptavinum bankans með vopnum. Inni í bankanum voru meðal annars börn. 30. desember 2015 18:44
Svona útveguðu ræningjarnir sér flóttabíl: Óku um með brauð og berlínarbollur aftur í Jarek Kuczynski, eigandi Hverafoldar bakarís, segir að bílnum hafi verið stolið í Hafnarfirði í morgun. 30. desember 2015 19:30
„Starfsfólk brást rétt við í erfiðum aðstæðum“ Mennirnir sem frömdu vopnað rán í Landsbankanum í dag höfðu á brott með sér einhverja fjármuni en upphæðin er óveruleg. 30. desember 2015 15:26
Tveir handteknir vegna bankaránsins Umfangsmikil leit stendur enn yfir í Hlíðunum. 30. desember 2015 18:10
Þetta eru mennirnir sem rændu bankann Lögreglan biður um aðstoð almennings við að bera kennsl á ræningjana. 30. desember 2015 14:52