Segir eigendur sjávarútvegsfyrirtækja gráta í fjölmiðlum til að hafa áhrif Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 15. ágúst 2015 19:18 Þórólfur Matthíasson ásamt Má Guðmundssyni seðlabankastjóra. Vísir/Stefán
Mörg hundruð störf á landsbyggðinni á komandi loðnuvertíð eru í algeru uppnámi vegna viðskiptabanns við Rússa. Þá er ljóst að ekki verða mikil uppgrip í viðkomandi samfélögum vegna vertíðarinnar en 80 prósent af frystum loðnuafurðum fóru á Rússlandsmarkað. Formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir að þetta verði þungt högg fyrir marga litla staði, svo sem Vestmanneyjar, Fáskrúðsfjörð, Neskeupsstað og Þórshöfn. Þórólfur Matthíasson hagfræðingur og prófessor við HÍ segir að sjávarútvegurinn sé vanur að bregðast við sveiflum og hafi þróað sín fyrirtæki til að bregðast við sveiflum. Hann efist því ekki um að sjávarútvegsfyrirtækin lifi þessar breytingar af. Það sé þó eðlilegt að menn séu dálítið í öngum sínum. Rætt var við hann í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.Voru ekki hoppandi á húsþökum Hann segir að eigendur sjávarútvegsfyrirtækjanna gráti svolítið í fjölmiðlum til að hafa áhrif á stjórnvaldsaðgerðir líkt og önnur stórfyrirtæki. Það sé ekkert óeðlilegt. Makríllinn hafi synt inn í landhelgina fyrir nokkrum árum síðan en aflaverðmæti hans sé um fimmtán milljarðar samkvæmt hagstofunni. Það sé hrein viðbót við tekjur þessara fyrirtækja og þeir séu því vel undirbúnir undir slaka. Þeir hafi ekki verið hoppandi á húsþökum þegar makríllinn kom en séu fljótir til að láta vita ef stjórnvaldsákvarðanir hafi neikvæð áhrif á þá.Snýst ekki bara um makríl Jens Garðar Helgason segist eiga erfitt með að skilja rök prófessorsins enda snúist málið ekki bara um makríl. Áttatíu prósent af frystum loðnuafurðum fari á Rússlandsmarkað, þegar sá markaður sé úr sögunni fari sú loðna í bræðslu. Það séu mörg hundruð störf í húfi á loðnuvertíðinni því ef loðnan fari í mjöl og lýsi verði uppsjávarfrystihúsin rekin á litlum eða engum afköstum. Þá glatist mörg hundruð störf. Hann skilj heldur ekki rök prófessorsins, hvað varði makrílinn því hann horfi fram hjá því að það hafi farið fram gríðarleg fjárfesting í greininni, þetta væri svipað og að segja að það yrði ekki áfall fyrir ferðaþjónustuna ef ferðamenn hættu að koma til landsins.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Sjá meira