Eigandinn deilir við bæinn um niðurníðslu á Friðarstöðum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 29. desember 2015 07:00 Útsendarar Fréttablaðsins veittu ástandi gróðarhúsa á Friðarstöðum eftirtekt á ferð sinni um Hveragerði í sumar. vísir/pjétur
Kæru eiganda býlisins Friðarstaða á hendur Hveragerðisbæ hefur verið vísað frá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Eigandi Friðarstaða krafðist þess að úrskurðarnefndin ógilti bréf byggingarfulltrúa Hveragerðis sem skoraði á hann að koma ástandi mannvirkja á jörðinni í viðunandi horf. Ásigkomulagi og viðhaldi heimalóðar Friðarstaða og nokkurra mannvirkja þar sagði byggingarfulltrúinn vera svo ábótavant að hætta stafaði af. Einkum væri ástand gróðurhúsa afar slæmt sem og umgengni á lóðinni. Fór byggingarfulltrúinn fram á að ónýtir lausamunir yrðu fjarlægðir og að gengið yrði snyrtilega frá öðru. Þá sagði að yrði úrbótum ekki lokið 31. júlí 2015 á þessu ári yrði dagsektum beitt. Meðal þess sem eigandi Friðarstaða segir í kæru sinni er að mál gróðurhússins sé til meðferðar hjá úrskurðarnefnd um viðlagatryggingu og ekki sé hægt að taka ákvörðun um það hús fyrr en niðurstaða liggi fyrir. Gróðurhúsið sé hluti dómsmáls milli eigandans og Hveragerðisbæjar. Líkur séu á að því máli verði skotið til Hæstaréttar og eigandinn telji sig ekki geta átt við það á meðan. „Að öðru leyti sé umgengni á lögbýlinu ekki verri en hjá öðrum aðilum í atvinnurekstri í bænum,“ segir síðan áfram um sjónarmið kærandans í umfjöllun úrskurðarnefndarinnar. „Á lögbýlinu séu tveir bílar í eigu aðila sem misst hafi hús sitt í jarðskjálftanum í maí 2008 og flutt burt úr bænum. Hafi þeir lofað að taka bíla sína burtu og verið í samskiptum við sveitarfélagið þar að lútandi. Þá sé erfitt að átta sig á því nákvæmlega hvað við sé átt í bréfi skipulags- og byggingarfulltrúa varðandi véla- og tækjahluti.“ Hveragerðisbær benti fyrir sitt leyti á að dagsektir hefðu enn ekki formlega verið lagðar á eiganda Friðarstaða. „Umrædd gróðurhús hafi verið í niðurníðslu allt frá því að þau hafi verið úrelt árið 2007 með sérstöku samkomulagi milli ábúenda og landbúnaðarráðherra.“ Þrátt fyrir að Hveragerðisbær hafi bent eiganda Friðarstaða á að snúa sér til úrskurðarnefndarinnar væri hann ósáttur við innihald bréfs byggingarfulltrúans og sagði úrskurðarnefndin málið ekki heyra undir hana þar sem með bréfinu hefði ekki verið tekin lokaákvörðun í málinu. Hins vegar hefðu borist fréttir af því að dagsektir hefðu nú verið lagðar á eftir að meðferð málsins hófst en að engin kæra hefði borist vegna þeirrar ákvörðunar.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira