Foreldrahlutverkið út frá jógafræðunum Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar 2. janúar 2015 11:30 Guðrún segir jóga vera ómissandi part af sínu lífi. Vísir/Vilhelm „
Jóga er náttúrulega í raun og veru kannski bara undirbúningur fyrir lífið. Þegar við erum í jóga þá erum við að styrkja hlutlausa hugann og þennan hluta af okkur sem getur tekið á hlutunum af æðruleysi og sýnt þolinmæði við alls konar aðstæður,“ segir Guðrún Darshan Arnalds, kundalini-jógakennari. Guðrún hefur staðið að skipulagi námskeiðsins Meðvitað foreldrahlutverk. Á námskeiðinu verður fjallað um foreldrahlutverkið út frá jógafræðum og um leiðir til þess að eiga í skapandi og eflandi samskiptum við börn. „Þetta er hluti af námi sem við erum búin að vera með í meðgöngujóga, þessi sérstaka helgi er áhugaverð fyrir alla sem koma á einhvern hátt að því að vinna með börnum. Hvort sem það eru foreldrar eða fólk í einhvers konar starfi með börnum,“ segir Guðrún. Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um afbrýðisemi systkina, samskiptafærni og fjölskyldukarma. „Hugleiðsla og jógaæfingarnar sjálfar geta hjálpað okkur að vinna úr svona mynstrum og venjum.“ Námskeiðinu stjórnar Satya Kaur, jógakennari og ljósmóðir frá Portúgal. „Hún ætlar aðallega að fjalla um hvernig við erum sem foreldrar. Það vantar svolítið í menntakerfið okkar að kenna okkur að vera hamingjusöm og heilbrigð,“ segir Guðrún og bætir við: „Ef við lærðum það ekki sjálf sem börn og lærum það ekki seinna á ævinni getum við ekki kennt börnunum okkar það.“ Hún segir ekki síður mikilvægt að kenna börnum að vera hamingjusöm og að kenna þeim að lesa og skrifa. „Þau kunna það auðvitað í grunninn en kunna það kannski ekki í þessari streitu og álagi sem við búum við.“ Ekki má vanmeta ró og yfirsýn í foreldrahlutverkinu. „Þegar það er mikið að gera og mikil streita í gangi þá er erfitt að halda þessari yfirsýn og stóísku ró sem maður vill geta haft sem foreldri. Þess vegna finnst mér jóga alveg ómissandi í mínu lífi til þess að geta haldið þessum styrk.“ Námskeiðið verður haldið í jógastöðinni Andartak helgina 10. til 11. janúar.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Sjá meira