Alltaf haft mikinn áhuga á draumum 13. janúar 2015 10:30 Næsta draumanámskeið Valgerðar verður haldið 22. janúar. Vísir/GVA „
Draumar eru flókið fyrirbæri og enginn veit nákvæmlega hvað þeir eru, hvaðan þeir koma og hver tilgangur þeirra er. En það eru til ótal kenningar,“ segir Valgerður H. Bjarnadóttir, félagsráðgjafi með BA-gráðu í heildrænum fræðum með áherslu á draumavinnu. Hún hefur í gegnum tíðina haldið fjölda námskeiða og veitt ráðgjöf um drauma. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á draumum. Mig dreymdi mikið og mundi draumana mína vel sem barn.“ Valgerður segir ríkjandi tilhneigingu til þess að líta á drauma sem forspár fyrirbæri eða ómarktæka, en hún vill hins vegar meina að draumar búi yfir dýpri merkingu. „Draumar geta stundum verið fyrir einhverju en ég held að oftast séu draumar um eitthvað, það er að segja um það sem er í gangi í lífi okkar og þeir gefa okkur þá einhvers konar nýja sýn á það. Oft eru þeir að segja okkur um fortíðina, eitthvað sem er óunnið í okkur. Ótta eða sorg, kvíða eða eitthvað sem við erum einhvern veginn að burðast með og höfum ekki verið tilbúin að vinna úr.“ Valgerður segir að þegar að draumarnir koma upp í meðvitund einstaklinga sé það vísbending um að þeir séu tilbúnir til þess að vinna með og úr viðfangsefni draumsins. Hún segir drauma þó ekki einungis gefa vísbendingu um óunna erfiðleika. „Draumar geta bæði hjálpað okkur að sjá það sem er erfitt og það sem við þurfum að vinna úr. En hjálpa okkur ekki síður að sjá auðinn sem við búum yfir og möguleikana sem við höfum.“ Með því að vinna með og taka mark á draumunum geti fólk nýtt draumana sér til góðs. Valgerður hefur í gegnum árin haldið námskeið þar sem hún meðal annars hjálpar fólki við að vinna með og nýta drauma sína. „Það sem ég er að reyna að gera er í rauninni að miðla þekkingu til fólks um það hvernig hægt er að nýta svefndraumana sína, til þess að skilja sjálfan sig betur, til þess að taka markvissari ákvarðanir í lífinu og svo framvegis.“ Næsta draumanámskeið Valgerðar fer fram þann 22. janúar í Lygnu og hefst klukkan sjö. Frekari upplýsingar um Valgerði og námskeið hennar má nálgast á vefsíðunni Vanadis.is.
Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Fleiri fréttir Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Sjá meira