Sýna hið rétta andlit Breiðholts Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 31. janúar 2015 11:30 Æskuvinkonurnar Þorbjörg og Hrefna í hverfinu sínu en þær vilja sýna rétt andlit Breiðholts á sýningu sinni í Galleríi Tukt. vísir/stefán
Æskuvinkonurnar Hrefna og Þorbjörg eru báðar aldar upp í Breiðholti, nánar tiltekið í Hólunum. Þeim hefur fundist í gegnum tíðina vera gefin röng mynd af hverfinu. „Þar til við fórum í menntaskóla höfðum við bara verið í hverfinu og upplifað það sem ósköp venjulegt hverfi sem gott er að alast upp í. Síðan byrjuðum við í menntaskóla og þegar við sögðumst vera úr Breiðholti fengum við oft þau viðbrögð að það væri gettó eða hættulegt hverfi. Okkur fannst við ekkert koma úr gettói. Þannig að við ákváðum að fara á stúfana og skoða þetta betur,“ segir Þorbjörg. Úr varð sýningin Andlit Breiðholts sem var verið að opna í Galleríi Tukt. Á sýningunni eru ljósmyndir, vídeóverk og viðtöl við fólk sem býr eða vinnur í Breiðholti og er það spurt um kosti og galla hverfisins. „Við töluðum við fólk í Mjódd og Hólagarði og eiginlega allir sem við töluðum við voru mjög jákvæðir og líður mjög vel í hverfinu. Það kannaðist ekkert við þetta gettó heldur. Þetta virðist bara vera orðspor á hverfinu og okkur finnst gott að koma með aðra hlið – hliðina frá þeim sem virkilega þekkja hverfið.“ Hvorug þeirra býr í Breiðholti eins og stendur. Þær vildu báðar flytja nær miðbænum en Þorbjörg segist vel geta hugsað sér að flytja aftur í Breiðholtið seinna meir. „Ég á mjög góðar minningar úr Breiðholti. Ég átti heim rétt hjá Elliðaárdalnum og það var stutt að labba þangað. Ég upplifi þetta sem rólegt hverfi og myndi alveg vilja ala upp börnin mín þar. Auðvitað leynast graffítíveggir og sóðaleg skúmaskot í Breiðholti eins og annars staðar en gettó geta líka verið kúl. Nú er Nýlistasafnið komið í Fellahverfið. Kannski breytast Fellin í listamannahverfi, svona eins og Brooklyn í New York.“
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Sjá meira