Erlingur missir tvo lykilmenn í erfið meiðsli Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. júlí 2015 23:30 Drux í leik með þýska landsliðinu. Vísir/Getty
Vikan hefur verið erfið fyrir Erling Richardsson, þjálfara þýska úrvalsdeildarfélagsins Füchse Berlin. Þýski landsliðsmaðurinn Paul Drux og sænski hornamaðurinn Mattias Zachrisson hlutu báðir erfið meiðsli á öxl á undirbúningstímabilinu og verða frá næsta hálfa árið hið minnsta. Þetta er ótrúleg óheppni fyrir refina frá Berlín en fyrir síðasta tímabil misstu þeir lykilmenn eins og Denis Spoljaric, Bartlomiej Jaszka og Colja Löffler í erfið meiðsli sem hafði mikil áhrif á tímabilið. Miklar vonir eru bundnar við Drux sem var í lykilhlutverki hjá Degi Sigurðssyni, þjálfara þýska landsliðsins, á HM í Katar í janúar. Dagur hætti sem þjálfari Füchse Berlin í vor og Erlingur tók við. Bjarki Már Elísson kom til liðsins í sumar en deilir stöðu vinstri hornamanns í liðinu með Svíanum Fredrik Petersen. Zachrisson spilar sem hægri hornamaður. Það verður erfitt fyrir Erling að fylla í skarð Drux en Bob Hanning, framkvæmdastjóri félagsins, útilokar ekki að fá nýja skyttu til félagsins í sumar í ljósi meiðslanna.
Handbolti Mest lesið Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira