West Wien valdi Hannes Jón úr Íslendingaflórunni Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. janúar 2015 12:24 Hannes Jón Jónsson í leik gegn Kiel fyrir nokkrum árum. vísir/getty
Hannes Jón Jónsson, fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta og leikmaður Eisenach í þýsku B-deildinni, verður næsti þjálfari austurríska félagsins West Wien. Hannes Jón staðfestir þetta við mbl.is í dag, en hann tekur við starfinu af Erlingi Richardssyni í sumar. Erlingur yfirgefur West Wien í lok tímabilsins og tekur við Fücshe Berlín af Degi Sigurðssyni. West Wien ætlaði sér að ráða íslenskan þjálfara og voru mörg nöfn í pottinum eins og kom fram í viðtali við Konrad Wilczynski, framkvæmdastjóra félagsins, í Frétablaðinu í desember. „Við munum líta fyrst til Íslands áður en við skoðum aðra þjálfara. Ég þekki marga íslenska leikmenn og þjálfara og hef rætt við þá um marga þjálfara. Ég tel að ég sé með um tíu nöfn íslenskra þjálfara sem koma mögulega til greina í starfið,“ sagði hann. Wilczynski staðfesti einnig við Fréttablaðið að það kæmi til greina að ráða spilandi þjálfara þó það væri ekki fyrsti kostur. „Ég útiloka ekki neitt en þeir eru afar fáir sem geta sinnt báðu. Dagur gerði það vel [hjá Bregenz] og ef við finnum einhvern sem kemur til greina munum við skoða það eins og allt annað,“ sagði hann. Hannes Jón er 34 ára gamall og hefur leikið í atvinnumennsku síðan 2008. Hann á að baki 36 landsleiki fyrir Ísland. West Wien er komið í fimm liða umspil um austurríska meistaratitilinn en deildin hefst aftur 6. febrúar.
Handbolti Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira