Afstaða Íslands til Úkraínu er skýr jón hákon halldórsson skrifar 3. febrúar 2015 07:00 Robert C. Barber kom til Íslands í fyrsta skipti 23. janúar. fréttablaðið/stefán
Nýr sendiherra, Robert C. Barber, kom í fyrsta sinn til Íslands föstudaginn 23. janúar síðastliðinn. Hann ætlar að nýta tímann til að skoða landið vel, fyrst Reykjavík og nágrenni, en segist vonandi síðar geta skoðað allt landið. Bandarískum ferðamönnum hefur fjölgað verulega hérna á landi. Spurður út í það segir Barber að það þýði vissulega að verkefnum sendiráðsins fjölgi. „Það er ýmislegt sem við getum hjálpað með og gerum allt sem við getum. Ég held að Bandaríkjamenn séu í öðru sæti þegar kemur að fjölda ferðamanna á Íslandi og það er frábært. Þetta er allt fólk sem er að koma hingað af góðri ástæðu. Við vildum gjarnan ná fyrsta sætinu.“ En hann bendir líka á að það sé tækifæri til að fjölga íslenskum ferðamönnum í Bandaríkjunum og hann vilji gjarnan ýta undir þá þróun. Hann segist líka gjarnan vilja leggja sitt af mörkum við að auka viðskipti milli ríkjanna. „Það er beggja hagur að viðskiptin aukist.“ Barber bendir á að hann hafi reynslu af því að starfa með nýsköpunarfyrirtækjum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum og unnið með frumkvöðlum. „Ég hlakka til að verða talsmaður á mörgum ólíkum sviðum, þar á meðal viðskiptasviðinu,“ segir sendiherrann. Barber segist hafa átt fjölda funda síðan hann kom hingað til lands og margir þeirra hafi verið viðskiptafundir. Hann hafi meðal annars fundað með Amerísk-íslenska viðskiptaráðinu og hitt forstjóra fjölda fyrirtækja hérna. „Ég var svo lánsamur að hitta líka fólk úr viðskiptalífinu, og annars staðar frá, í móttöku Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, þegar ég afhenti trúnaðarbréf mitt á miðvikudaginn,“ segir hann. Þá vekur Barber athygli á því að hann hafi heimsótt Íslenska sjávarklasann. „Það er mjög góður hópur fyrirtækja þar, sem á það sameiginlegt að hafa sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi. Þar eru svo miklir möguleikar á að flytja þær vörur og þá þjónustu til Bandaríkjanna.“ Ísland eigi líka sóknarfæri vegna þekkingar sinnar á jarðhita. Ekki einungis í samskiptum við Bandaríkjamenn heldur við fleiri aðila. Þessi þekking hafi til að mynda mikla þýðingu fyrir uppbyggingu í Eþíópíu. Samskipti Íslands og Bandaríkjanna hafa breyst nokkuð frá því sem var á tímum kalda stríðsins. Skiptir Ísland jafn miklu máli fyrir Bandaríkin og áður? „Íslendingar og Bandaríkjamenn hafa verið miklir bandamenn í marga áratugi, allt frá því að lýðveldið var stofnað. Þjóðirnar eru miklir bandamenn í NATO og Ísland skiptir Bandaríkin virkilega máli,“ segir hann. Bandaríkjamenn hafi kunnað vel að meta þessi tengsl. „Samskipti þróast með tímanum og ég get ekki haft áhrif á það sem hefur gerst fram að þessum tíma. En ég ætla að gera allt sem ég get til að auka samskiptin, bæði tvíhliða samskipti og líka þar sem við erum hluti af stærri hreyfingum. Norðurskautsráðið er til að mynda vettvangur þar sem ég held að hagsmunir Bandaríkjanna og hagsmunir Íslands fari saman. Það eru margar leiðir, bæði innan ráðsins og í tvíhliða samskiptum og sem félagar í NATO, þar sem Ísland skiptir Bandaríkin miklu máli. Ég vonast til að geta stutt við þau samskipti á meðan ég er hér.“ Barber segir að lokum að Ísland hafi fylgst vel með þróun mála í Úkraínu og Bandaríkjamenn kunni vel að meta það. Hann segist hafa hitt Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra á föstudagsmorgun. „Honum hefur verið mjög umhugað um þetta mál og hann hefur verið skýr í afstöðu Íslands til deilunnar í Úkraínu. Bandaríkin kunna vel að meta það. Ísland hefur boðið fram stuðning sinn, ekki bara í orðum heldur líka með gjörðum.“
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira