„Ég gerði ekki neitt“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. júlí 2015 22:11 Hér sést Samuel DuBose í bíl sínum og vinstri hönd Ray Tensing. Vísir/skjáskot
Lögregluþjónn í Cincinnati hefur verið leystur frá störfum og ákærður fyrir morð á ökumanni þann 19. júlí síðastliðinn. Er það í fyrsta skipti sem laganna vörður hefur verið ákærður fyrir að myrða einhvern við skyldustörf í ríkinu. Hann á yfir sér 15 ára til lífstíðarlanga fangelsisvist verði hann fundinn sekur. Myndband sem tekið var á myndavél í búningi lögreglumannsins Ray Tensing gefur til kynna að hinn óvopnaði Samuel DuBose hafi verið skotinn í kjölfar yfirvegaðra orðaskipta þeirra tveggja. Atvikið átti sér stað eftir að Tensing hafði beðið hinn 43 ára gamla Samuel DuBose að nema staðar er hann ók eftir þjóðvegi í ríkinu.Lögreglumaðurinn Ray Tensing.Vísir/APAð sögn talsmanns lögreglunnar sá lögreglumaðurinn að bílnúmeraplötu vantaði á bíl DuBose og hafi Tensing því ákveðið að veita honum eftirför. Eftir að hann stöðvaði bílinn hafi ökumaðurinn ekki getað framvísað ökuskírteini heldur rétti lögreglumanninnum fulla flösku af áfengi. Af myndbandinu að dæma virðist ekki hafa komið til handalögmála þeirra á milli eða að DuBose hafi ögrað lögreglumanninum með nokkrum hætti. Þá virðist bíllinn ekki keyra af stað fyrr en eftir að ökumaðurinn hefur verið skotinn. Það er talið skipta miklu máli fyrir væntanlegan úrskurð í málinu en lögregluþjónninn Tensing sagði að hann hafi dregist á eftir bílnum og því neyðst til að skjóta DuBose. Ökumaðurinn lést af sárum sínum og er talið að skot sem hann hlaut í höfuðið hafi dregið hann til dauða. Hinstu orð Samuel DeBose voru: „Ég gerði ekki neitt“ Myndbandið má sjá hér að neðan.
Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira