Bryndís Rún með Íslandsmet á HM í morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. ágúst 2015 07:25 Bryndís Rún Hansen. Mynd/Sundsamband Íslands
Akureyringurinn Bryndís Rún Hansen, sundkona úr Óðni, bætti sitt eigið Íslandsmet í 50 metra flugsundi í morgun á Heimsmeistaramótinu í 50 metra laug í Kazan í Rússlandi. Metsund Bryndísar dugaði henni í 21. sæti af 65 keppendum en sextán efstu tryggðu sér sæti í undanúrslitunum. Bryndís Rún synti á 26,79 sekúndum í 50 metra flugsundinu í dag en gamla metið hennar var sund upp á 26,92 sekúndur síðan á Íslandsmeistaramótinu í apríl. Þetta var mun betri árangur hjá Bryndísi en í 100 metra skriðsundinu þar sem hún varð í 45. sæti en það var hennar fyrsta grein á stórmóti sem þessu. Nú bjó Bryndís að þeirri reynslu og synti mjög vel í morgun. Hún á síðan eftir að synda 50 metra skriðsund á morgun og með boðsundssveit Íslands á sunnudaginn. Brasilíska sundkonan Daynara De Paula var síðust inn í undanúrslitin en hún synti á 26,49 sekúndum og það munaði því mjög litlu að Bryndís kæmist í undanúrslitin. Norðurlandabúar náðu tveimur bestu tímunum í undanrásunum. Hin sænska Sarah Sjöström var með besta tímann (25,43 sekúndur) og hin danska Jeanette Ottesen synti á 25,51 sekúndu. Sjöström á heimsmetið í greininni en hefur endað í 4. sæti í 50 metra flugsundi á síðustu tveimur Heimsmeistaramótum.
Sund Mest lesið Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Þýskaland - Curacao | Slá HM-met Íslendinga Fótbolti Leik lokið: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Leik lokið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Fleiri fréttir Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Leik lokið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Japanir mættir til að vinna heimsmeistaramótið, ekki til að skemmta sér Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Leikmenn Portúgal bera Diogo Jota-armbönd á HM Leik lokið: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Ísak Bergmann trúlofaður Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin „Ég er þeim ævinlega þakklátur“ Náði loks sigri með Ferrari Magdeburg fékk bronsið Hulda Clara vann í Tékklandi Potter spurður hvort það hafi hjálpað að vera ekki danskur Vilja sjá betri frammistöðu frá Breiðablik Fær laun greidd en fær ekki að dæma Maður dagsins: Innflytjandi sem fór snemma til Bayern Mörkin úr Bestu deildinni Fyrsti sigur á heimsmeistaramóti síðan 1990 Óvæntur varnarsigur Meistari í fyrsta skipti í 53 ár „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Amorim talinn líklegastur til að taka við AC Milan Forseti FIFA móðgaði Ítali Dagskráin: Botnbarátta í Bestu og Barcelona-kappakstur í Formúlu 1 Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Sjá meira