Tveir dæmdir morðingjar sluppu úr hámarksöryggisfangelsi Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 7. júní 2015 10:08 Lögreglan í New York biður alla um að deila Facebook færslu sinni. Vísir/New York State Police
Tveir dæmdir morðingar sluppu úr fangelsi í New York sem alla jafna hefur verið þekkt fyrir hámarksöryggi. Fangarnir skáru í gegnum stálvegg og skriðu í gegnum undirgöng að holræsisopi fyrir utan veggi fangelsisins. Fangarnir heita Richard Matt og David Sweat en það uppgötvaðist að þeir voru horfnir snemma í gærmorgun. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar í New York. Þeir sáust síðast á ellefta tímanum á föstudagskvöldið síðastliðið.**PLEASE SHARE**On June 6, at 5:45 a.m. the New York State Police received a call from the Clinton Correctional...Posted by New York State Police on Saturday, June 6, 2015Þá fór um leið í gang víðtæk leit en 200 manns tóku þátt í henni. Mennirnir eru þeir fyrstu sem sleppa úr hámarksöryggishluta fangelsisins. „Þetta eru hættulegir menn,“ sagði Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York fylkis, „Þeir eru ekkert til að leika sér að.“ Fangarnir plötuðu fangaverðina með því að láta líta út fyrir að þeir svæfu í rúmum sínum þegar verðirnir framkvæmdu talningu á tveggja tíma fresti. Matt og Sweat dvöldu í fangaklefum hlið við hlið og höfðu samkvæmt CNN einhvers staðar fengið verkfæri sem eru nógu öflug til þess að skera í gegnum stálveggi. Fangelsisyfirvöld tóku Cuomo í gegnum flóttaleið fanganna. „Þetta var vönduð og margbrotin áætlun. Það þurfti að bora í gegnum stálveggi og stálpípur.“Viewing the manhole near Clinton County correctional facility as part of seeing how inmates escaped: pic.twitter.com/hCqRljvyL2— Andrew Cuomo (@NYGovCuomo) June 6, 2015 Fangelsisyfirvöld hafa enga hugmynd um hvernig fangarnir náðu í svo öflug verkfæri. Fangelsið er frá árinu 1845 og undirgengst reglulega viðhald svo líklegt er talið að verkfærin hafi komið frá iðnaðarmönnum sem starfa innan stofnunarinnar. Sweat var dæmdur til lífstíðarfangelsis án möguleika á reynslulausn eftir að hann var dæmdur yfrir morð á lögreglumanni í júlí árið 2002. Matt fékk hins vegar frá 25 árum til lífstíðarfangelsisvistar. Hann var dæmdur fyrir þrjú morð, þrjú mannrán og tvö rán eftir að hann rændi manni og barði hann til dauða í desember árið 1997. Fangelsið sem þeir dvöldu á er það stærsta í New York en þar dvelja 2689 fangar.
Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Bærinn vilji taka hluta Smáralindar á leigu fyrir 1,5 milljarða Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Sýknudómur í hryðjuverkamálinu ómerktur Innlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Brynja Dan í óvissu um oddvitasætið í Garðabæ Innlent Orðhengilsháttur vill einkenna ESB-umræðuna Innlent Axel segist fórnarlamb subbulegra og fullkomlega tilhæfulausra ærumeiðinga Innlent Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Innlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Sjá meira