Útblástur á annarra manna fé 13. nóvember 2015 09:00 Á Íslandi er að myndast eins konar 2007 eða 2002 stemming, allt eftir því hvernig á það er litið. Atvinnuleysi er lítið, laun eru að hækka, fasteignaverð er á hraðri uppleið og víða virðist vera mikið fé til ráðstöfunar, þó með veigamiklum undantekningum. Í slíku árferði streyma verðmæti inn í hirslur hins opinbera, bæði í ríkissjóð og sjóði sveitarfélaganna. Sköttum er haldið háum og sífellt er bætt í eyðsluna. Ríkisvaldið og einhver sveitarfélög eru að reyna lækka skuldir á meðan önnur, eins og Reykjavík, safna skuldum. Það er í svona árferði sem mikilvægt er að temja sér aga í fjármálum, halda útgjöldum neðan við tekjur, greiða niður skuldir og jafnvel leggja fyrir og fjárfesta. Vonandi muna Íslendingar enn vel hvað varð um þá sem héldu bensíngjöfinni í botni alveg fram að hruni og hafa lært sína lexíu. Einn hópur hefur samt ekki lært nokkurn skapaðan hlut og það eru stjórnmálamenn. Sem skýrt dæmi um það er hinn mikli fjöldi stjórnmálamanna og opinberra embættismanna sem situr nú í París og tekur þátt í 21. aðildarríkjaþingi loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna (COP21), en það er fjölmennur kjaftaklúbbur sem flýgur á morgnana, bölvar flugsamgöngum á daginn og drekkur rauðvín á kostnað skattgreiðenda á kvöldin. Ríkið sendi af stað hvorki meira né minna en 3 ráðherra og 12 aðstoðarmenn. Reykjavík sendi 12 borgarfulltrúa og -starfsmenn. Ekki er þá víst að allt sé upptalið. Íslenskir skattgreiðendur þurfa með öðrum orðum að standa straum af kostnaði vegna skemmtiferðar stórs hóps opinberra starfsmanna og stjórnmálamanna. Eftir hrunið 2008 skellti Reykjavík í lás þegar kom að ferðalögum borgarstarfsmanna erlendis. Nú er sú tíð liðin og mannskapurinn sem fær að fljúga á kostnað annarra orðinn mjög fjölmennur. Stjórnmálamenn á öllum stjórnstigum bjóða sér ítrekað á allskyns námskeið, vettvangsferðir og ráðstefnur út um allan heim og hika ekki við að bera á borð furðulegustu ástæður fyrir öllu bröltinu. Eins og barðir hundar Skattgreiðendur segja lítið sem ekkert enda vanir því eins og barðir hundar að þurfa að halda í sér í langan tíma því eigandinn nennir ekki að gefa þeim svigrúm til að teygja á sér lappirnar. Fréttamenn segja lítið sem ekkert enda fá þeir oft að fljóta með á hinar fínu samkundur sem veita þeim að auki hráefni í margar fyrirsagnir. Unga fólkið, sem þarf að éta skuldirnar sem verið er að hlaða upp, segir ekkert enda upptekið við að ákveða hvernig það kemst sjálft á toppinn á fæðupíramídanum síðar meir. Hinir sem eldri eru segja ekkert því þeir gera ráð fyrir að vera dauðir þegar lánardrottnar banka á dyrnar og heimta að velferðarkerfið sé sett á sölu til að greiða af lánunum. Atvinnulífið segir ekkert af ótta við að verða fyrir nýrri skattheimtu í formi hvers kyns eftirlitsgjalda og sértækra skatta. Stjórnmálamenn ganga á lagið og slá upp veislu á kostnað annarra við hvert tækifæri. París er bara byrjunin. Á næsta ári þarf að mæta á enn fleiri ráðstefnur í fjarlægum heimshornum, skoða holræsakerfið í Perth, Ástralíu, sporvagnana í San Francisco, Kaliforníu og eldfjallaviðbúnað Hawaii-eyja, svo eitthvað sé nefnt. Vitið til, kæru skattgreiðendur og almenningur allur, ef enginn spyrnir við fótum núna þá kemur árið 2008 hraðar en við kærum okkur um. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig lesum við skoðanagreinar? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Vatnaskil í markaðssetningu Íslands Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Af hverju hunsa Samfylkingin og Vinstrið umboðsmann barna? Þórður Halldórsson skrifar Skoðun Dómar sem eru ekkert annað en „one way ticket“ á Litla-Hrauni Davíð Bergmann skrifar Skoðun Spyrjum við áfram nýrra spurninga? Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Sigurjón Þórðarson og sannleikurinn Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða áfengisgjaldið? Einar Bárðarson skrifar Skoðun Þegar dýravelferð víkur fyrir hagnaði Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson skrifar Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar Skoðun Vandinn talaður burt Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Hvenær verða sjóðir mikilvægari en félagsmenn? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar Sjá meira
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun
Skoðun Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar
Stjórnsýsla Íslands er ekki „allt of lítil“, hún er „lítil og skilvirk“ Halldór Jörgen Olesen Skoðun