Innlent

Kviknaði í Hlölla á Selfossi

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Frá vettvangi í morgun við Hlöllabáta á Selfossi.
Frá vettvangi í morgun við Hlöllabáta á Selfossi. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson.​
Eldur kom upp á tíunda tímanum í morgun á skyndibitastaðnum Hlöllabátum á Selfossi. Slökkvilið Brunavarna Árnessýslu, auk sjúkrabíls og lögreglu, var kallað á staðinn.

Um minniháttar eld var að ræða undir þaki staðarins sem slökkviliðsmenn voru fljótir að slökkva. Ekki er vitað um upptök eldsins en lögreglan á Suðurlandi mun rannsaka það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×