Tregi á síðasta starfsdegi framkvæmdastjórans Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 31. desember 2015 07:00 Boð var haldið á síðasta starfsdegi Þróunarsamvinnustofnunar og framkvæmdastjórans, Engilberts, í gær. vísir/ernir
Í gær var boðið upp á kveðjukaffi í Þróunarsamvinnustofnun Íslands. Það var síðasti starfsdagur stofnunarinnar og í dag verður hún lögð niður. Á nýju ári fer starfsfólk og starfsemi stofnunarinnar undir Þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Öllu starfsfólki stofnunarinnar var boðið áframhaldandi starf nema framkvæmdastjóranum, Engilberti Guðmundssyni. Hann segir þessi tímamót tregablandin. „Þetta er stofnun sem hefur starfað undir núverandi heiti í 34 ár. Hér hafa stafað hundruð Íslendinga og önnur hundruð útlendinga við þróunarsamvinnu. Þetta er auðvitað dálítil sorgarstund.“ Engilbert segir alltaf hafa legið fyrir að stofnunin og hann sem talsmaður hennar hafi lagst á móti breytingunum. „Til lengdar er hætta á að þetta dragi úr fagmennsku og við teljum betri stjórnsýslu að hafa skil á milli hins pólitíska ráðuneytis og hins faglega framkvæmdaaðila.“ Engilbert hefur einnig áhyggjur af þróunarsamvinnu á heimsvísu. „Ég er hræddur um að loforð manna vegna aðstoðar við að framfylgja Parísarsamningnum gangi ekki upp og einnig hafa fjölmörg Evrópulönd gefið það út að þau telji sig þurfa að taka fjármagn úr þróunarsjóðum til að styrkja móttöku flóttamanna. Grunnaðstoðin klemmist þarna á milli.“ Engilbert segir það sorglegt í ljósi þess að mikill árangur hafi náðst síðustu fimmtán ár og spár alþjóðastofnana eru að á næstu þrjátíu árum muni ekkert þeirra landa, sem fá aðstoð í dag, þurfa aðstoð. „En það er að því gefnu að þróunarsamvinnan haldi áfram með sama hætti.“ Engilbert lýkur því störfum með áhyggjur en hann hefur starfað í alþjóðasamvinnu síðustu þrjátíu ár. „Svo kemur nýtt ár og ég þarf að draga andann djúpt og venjast því í fyrsta skipti í hálfa öld að vera ekki að vinna á hverjum degi.“
Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Sjá meira