Nýttu heimildina til að opna vopnakassa lögreglubíla í Reykjavík í fyrsta sinn Nadine Guðrún Yaghi skrifar 21. desember 2015 06:00 Allar verklagsreglur í kringum breytingar á vopnamálum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru frágengnar í síðustu viku. Vísir „
Þessi heimild var veitt á laugardag,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um það að almennir lögregluþjónar hafi verið vopnum búnir á vettvangi á Kjalarnesi á laugardag. Tilkynning barst lögreglu um mann á sjötugsaldri sem væri með skotvopn og sýndi af sér ógnandi framkomu á heimili sínu. Fréttablaðið greindi frá því í lok síðasta mánaðar að um miðjan desember yrði stefnt að því að skammbyssum yrði komið fyrir í sérstökum vopnakassa í lögreglubílum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í fyrsta sinn. Að sögn Ásgeirs Þórs voru allar verklagsreglur í kringum breytingarnar tilbúnar í síðustu viku og þriggja ára verkefni lokið. Vopnakössum hefur verið komið fyrir í nokkrum lögreglubílum á höfuðborgarsvæðinu. Lögregluþjónar munu ekki koma til með að hafa aðgang að skammbyssunum nema þar til bær yfirmaður láti þeim í té aðgangskóða að vopnakassanum eftir að hann hefur verið upplýstur um málavexti. Yfirmaður mun þá meta nauðsyn þess í hverju tilviki fyrir sig. „Í þessu tilviki var það aðstoðaryfirlögregluþjónn sem var bær yfirmaður til að veita hana. Ef verkefnið þolir ekki bið þá getur hann sjálfur tekið ákvörðun, annars þarf hann að bera ákvörðun undir yfirmann sinn,“ segir Ásgeir. Kristján Ólafur Guðnason aðstoðaryfirlögregluþjónn, sem veitti umrædda heimild, segir að á laugardag hafi komið upp aðstæður þar sem verklagið hafi átt við og að eftir því hafi verið farið.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira