Akstursstyrkir til foreldra leikskólabarna á Hvolsvelli frá áramótum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 28. desember 2015 10:34 Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra. vísir/mhh „
Þetta eru nýjar afsláttareglur hjá okkur sem taka gildi um áramótin og ná til foreldra sem eiga lengst að koma til að sækja leikskólapláss fyrir börn sín. Ástæða nýju reglnanna er sú að við erum með einungis einn leikskóla í sveitarfélaginu, það er á Hvolsvelli. Við gerðum tilraun með aðra leikskóladeild undir Eyjafjöllum, það var reyndar dagvistun eins og hjá dagmæðrum. Því miður voru ekki nægilega mörg börn sem sóttu þá þjónustu og þá leituðum við aðra leiða og þetta varð útkoman,“ segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra vegna nýju reglnanna en yfirskrift þeirra er „Akstursstyrkir til leikskólabarna“. Foreldrar þurfa sjálfir að sækja um þessa styrki og þeir þurfa að uppfylla ákveðin ákvæði svo sem um 5 daga vistun, hafa búsetu og lögheimili í sveitarfélaginu í meira en 20 kílómetra fjarlægð frá leikskóla, það er aðra leið. Afslátturinn nemur 20 prósentum af grunnvistunargjöldum leikskólans Arkar á Hvolsvelli. „Um margra ára skeið hafa fimm ára börn úr dreifbýli átt kost á því að ferðast með skólabíl og taka þátt í skólastarfi í leikskólanum á Hvolsvelli. Afar góð reynsla er af því. Þannig læra börnin að umgangast hvert annað áður en til hefðbundins skólastarf kemur. Einnig er mjög gott samstarf milli leikskóla og grunnskóla þar sem verið er að undirbúa yngstu börnin undir það að hefja nám í grunnskólanum. Það er mikið stökk að koma úr vernduðu umhverfi leikskólans í grunnskólann þar sem mikill aldursmunur er á þeim elstu og yngstu. Við erum þakklát fyrir þetta góða samstarf sem er afar mikilvægt að mínu mati,“ segir Ísólfur Gylfi.
Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira