Fær bætur vegna handtöku í nauðgunarmáli sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 28. desember 2015 13:55 Maðurinn var sýknaður af fjögurra og hálfs árs nauðgunardómi. Hann fær bætur frá ríkinu vegna handtökunnar. vísir/gva
Íslenska ríkinu hefur verið gert að greiða karlmanni, sem sýknaður var í Hæstarétti eftir að hafa verið sakfelldur fyrir nauðgun, alls 275 þúsund krónur í skaðabætur vegna handtöku, líkamsrannsóknar og vistunar í fangaklefa árið 2011. Hann hafði farið fram á fjórar milljónir, meðal annars vegna sakfellingar að ósekju. Maðurinn var í Héraðsdómi Reykjavíkur í janúar 2013 dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun. Honum var gefið að sök að hafa, ásamt öðrum karlmanni, dregið tæplega nítján ára stúlku inn í bíl sem var fyrir utan veitingastað við Hlemm og svo borið hana inn í íbúð í Reykjavík og nauðgað henni. Hinn maðurinn var dæmdur í fimm ára fangelsi og var þeim báðum gert að greiða stúlkunni tvær milljónir króna í miskabætur. Mennirnir eiga báðir langan sakaferil að baki. Hæstiréttur sneri dómnum í sýknu í júní 2013. Dómurinn gagnrýndi niðurstöðu héraðsdóms og sagði að dregnar hefðu verið ályktanir af framburði ætlaðs brotaþola sem ekki fáist staðist. Verulegs misræmis gæti um mikilvæg atriði í framburði stúlkunnar, sem að sumu leyti stangist á við það sem sýnileg sönnunargögn taki tvímæli um. Maðurinn stefndi íslenska ríkinu í kjölfarið. Hann sagði málið hafa haft mikil áhrif á sig, hann hefði verið fordæmdur af öllum í kringum sig. Hann hafi orðið mjög þunglyndur og hætt í vinnu. Þá hafi hann flutt til útlanda þar sem honum hafi þótt óbærilegt að vera hér á landi, en að erfiðlega hafi gengið að leita að vinnu með sakfellingardóminn á netinu. Lögmaður hans sagði fyrir dómi að vanlíðan mannsins hafi verið mikil, og lýsti ástandi hans sem sálarangist. Ríkið krafðist sýknu í málinu. Byggði það mál sitt á því að maðurinn hefði sjálfur valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum lögreglu sem hann krefjist bóta fyrir. Ekkert venjulegt hafi verið við þá atburðarás sem lýst hafi verið – sjálfur hafi hann viðurkennt „afbrigðilegar samfarir við unga stúlku sem hafi átt erfitt með að verjast“. Ósannað sé að hún hafi samþykkt fyrirfram þau ósköp sem henni hafi verið gerð. Niðurstaðan varð sú að maðurinn fær frá ríkinu bætur og málskostnaður fellur niður. Þá greiðist málflutningsþóknun lögmanns hans úr ríkissjóði, samtals 650 þúsund krónur.
Tengdar fréttir Hæstiréttur snýr nauðgunardómi í sýknu Stefán Logi Sívarsson og Þorsteinn Birgisson hafa verið sýknaðir af ákæru um að hafa nauðgað átján ára stúlku. Hæstiréttur gagnrýnir niðurstöðu héraðsdóms og annmarka á rannsókn lögreglu. Einn dómari af fimm skilar sératkvæði og vill sakfella. 19. júní 2013 12:55 Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Fyrsta árinu af fjórum lokið Erlent Fleiri fréttir Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Norðfirðingar gleðjast að sjá loðnuna birtast Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Gríðarleg fjölgun hótana og dæmi um að setið sé fyrir lögreglumönnum Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Ofbeldi gegn lögreglumönnum magnast og baráttan hafin um Framsókn Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Brynjar skýtur föstum skotum á Flokk fólksins „Fyrsta ár ríkisstjórnarinnar hefur mistekist“ Magnús Eiríksson borinn til grafar Heitt í hamsi vegna Grænlands Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Eldgos á næstu vikum enn líklegasta niðurstaðan Sjö tilkynningar um heimilisofbeldi að jafnaði á dag „Ekki gott að fólk sé endalaust að sulla svona í víni“ Styrkleiki að formaður Framsóknar eigi sæti á þingi Þrjátíu á slysadeild vegna hálku og sjúkrabílar á leiðinni með fleiri Mannréttindaráðið ræðir Íran að frumkvæði Íslands Fimm starfslokasamningar kostað Hafró 35 milljónir Ögranir Trumps halda áfram og tugir leituðu á bráðamóttöku í hálkunni Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Ingibjörg býður sig fram í formanninn Þrír fullir Íslendingar lausir úr haldi Hrókering hjá Helga og Miðflokknum vex Áss megin Sjá meira
Hæstiréttur snýr nauðgunardómi í sýknu Stefán Logi Sívarsson og Þorsteinn Birgisson hafa verið sýknaðir af ákæru um að hafa nauðgað átján ára stúlku. Hæstiréttur gagnrýnir niðurstöðu héraðsdóms og annmarka á rannsókn lögreglu. Einn dómari af fimm skilar sératkvæði og vill sakfella. 19. júní 2013 12:55