Gefa öllum börnum 10 til 15 ára flugeldagleraugu Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2015 11:01 Gjafabréfum á flugeldagleraugu má framvísa á öllum flugeldamörkuðum björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar til að fá gleraugun afhent. Vísir/Slysavarnafélagið landsbjörg
Slysavarnafélagið Landsbjörg mun senda öllum börnum 10 til 15 ára gjafabréf fyrir flugeldagleraugum. Þetta er gert til að fyrirbyggja augnslys af völdum flugelda og er gert í samvinnu við Blindrafélagið, Sjóvá, Póstinn og Prentsmiðjuna Odda. Í tilkynningu frá Landsbjörgu segir að samtals verði send 25.680 gjafabréf og að vonir standi til að gleraugun verði til þess að ekkert þeirra slasist á augum um áramótin. Þó sé rétt að ítreka að allir ættu að nota flugeldagleraugu, sama á hvaða aldri þeir eru, hvort sem viðkomandi er að skjóta upp eða eingöngu að horfa á. „Fikt með flugeldavörur er of algengt hjá krökkum og þá sérstaklega strákum. Þeir taka flugelda í sundur, safna púðrinu saman og búa til sprengjur. Þessi leikur er stórhættulegur og foreldrar verða að vera vakandi og meðvitaðir um það sem börn þeirra eru að fást við þessa daga. Annar hópur sem hefur verið að lenda í flugeldaslysum eru karlmenn á besta aldri. Oft er áfengi með í för þegar þau verða. Munum að áfengi og flugeldar eiga aldrei samleið. Gjafabréfum á flugeldagleraugu má framvísa á öllum flugeldamörkuðum björgunarsveita Slysavarnarfélagsins Landsbjargar til að fá gleraugun afhent. Einnig fylgja flugeldagleraugu öllum fjölskyldupökkum sem seldir eru hjá björgunarsveitum,“ segir í tilkynningunni. Flest slysanna má rekja til þess að hvorki er farið eftir grundvallarreglum um notkun flugelda né leiðbeiningum sem eru á vörunum og algengast er að einstaklingar slasist á höndum, andliti og augum.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira