Yfirlýsing frá Halldóri Lúðvígssyni Halldór B. Lúðvígsson skrifar 10. desember 2015 14:18 Kópavogur 10. desember 2015 Í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um ásakanir Hreiðars Más Sigurðssonar í minn garð vil ég koma eftirfarandi á framfæri. Ég seldi aldrei hlutabréf í Exista. Ég keypti bréf í Exista í hlutafjárútboði sem var haldið í tengslum við skráningu félagsins á hlutabréfamarkað á árinu 2006. Þau hlutabréf átti ég enn þegar bréf félagsins voru tekin úr viðskiptum á árinu 2010 í tengslum við nauðasamninga félagsins. Ég tapaði því þeim peningum sem ég hafði fjárfest í Exista líkt og aðrir fjárfestar. Hvað varðar sölu mína á bréfum í Kaupþingi nokkrum dögum eftir þjóðnýtingu Glitnis, þá byggði sú sala einungis á þeirri forsendu að við þjóðnýtingu Glitnis væri um gjörbreytt landslag að ræða á íslenskum fjármálamarkaði. Ákvörðun um þá sölu byggði ekki á neinum innherjaupplýsingum, enda var ég almennur starfsmaður í Kaupþingi með engan aðgang að innherjaupplýsingum. Eins og fram hefur komið sendi Hreiðar Már bréf á árinu 2011 til ýmissa aðila þar sem vakin var athygli á sölu minni á þessum hlutabréfum. Í kjölfar þessa bréfs fékk ég fyrirspurn frá FME um málið. Eftir að ég hafði svarað þeirri fyrirspurn taldi FME mig ekki hafa búið yfir innherjaupplýsingum og taldi ekki tilefni til frekari athugunar. Ég lít svo á að með þeirri ákvörðun hafi FME staðfest að umrædd sala hafi verið eðlileg og hafi þar með hreinsað mig af þessum ásökunum. Að gefnu tilefni vil ég að lokum ítreka það sem áður hefur komið fram og verið staðfest af embætti sérstaks saksóknara. Engir samningar hafa verið gerðir milli mín og embættis sérstaks saksóknara um að fallið verði frá málsókn á hendur mér gegn því að ég beri vitni. Á öllum stigum málsins hef ég einvörðungu, eins og mér ber skylda til, svarað spurningum embættisins eftir bestu getu. Virðingarfyllst Halldór B. Lúðvígsson Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tengdar fréttir Aldrei spurður út í söluna á hlutabréfunum í Exista og Kaupþingi tæpri viku fyrir fall bankans Halldór Bjarkar Lúðvígsson segist hafa þurft að sitja undir dylgjum og aðdróttunum af hálfu Hreiðars Más Sigurðssonar. Hann kveðst aldrei hafa við sérstakan saksóknara um sakaruppgjöf. 9. desember 2015 20:47 „Ég held að þetta þoli ekkert óskaplega mikið dagsljós“ Lögfræðingi hjá Kaupþingi í Lúxemborg leist ekkert á lánveitingar bankans til eignalítilla eignarhaldsfélaga í byrjun ágúst 2008 og taldi viðskiptin sem þær tengdust ekki "eðlilegan bankabusiness.“ 8. desember 2015 20:15 Hreiðar Már og saksóknari tókust harkalega á í héraðsdómi "Ég tók ábyrgð mína sem forstjóri Kaupþings mjög alvarlega og ég helgaði líf mitt velgengni Kaupþings,” sagði Hreiðar Már Sigurðsson. 7. desember 2015 11:49 Halldór Bjarkar um Hreiðar Má: „Mér datt ekki í hug að hann myndi hlaupast svona undan ábyrgð“ Lykilvitni ákæruvaldsins í CLN-málinu bar vitni í héraðsdómi í dag. 9. desember 2015 18:58 Mest lesið Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Hver vill borða brauðið? Jón Óskar Hinriksson skrifar Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar Skoðun Vandinn talaður burt Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Hvenær verða sjóðir mikilvægari en félagsmenn? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Sjá meira
Kópavogur 10. desember 2015 Í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um ásakanir Hreiðars Más Sigurðssonar í minn garð vil ég koma eftirfarandi á framfæri. Ég seldi aldrei hlutabréf í Exista. Ég keypti bréf í Exista í hlutafjárútboði sem var haldið í tengslum við skráningu félagsins á hlutabréfamarkað á árinu 2006. Þau hlutabréf átti ég enn þegar bréf félagsins voru tekin úr viðskiptum á árinu 2010 í tengslum við nauðasamninga félagsins. Ég tapaði því þeim peningum sem ég hafði fjárfest í Exista líkt og aðrir fjárfestar. Hvað varðar sölu mína á bréfum í Kaupþingi nokkrum dögum eftir þjóðnýtingu Glitnis, þá byggði sú sala einungis á þeirri forsendu að við þjóðnýtingu Glitnis væri um gjörbreytt landslag að ræða á íslenskum fjármálamarkaði. Ákvörðun um þá sölu byggði ekki á neinum innherjaupplýsingum, enda var ég almennur starfsmaður í Kaupþingi með engan aðgang að innherjaupplýsingum. Eins og fram hefur komið sendi Hreiðar Már bréf á árinu 2011 til ýmissa aðila þar sem vakin var athygli á sölu minni á þessum hlutabréfum. Í kjölfar þessa bréfs fékk ég fyrirspurn frá FME um málið. Eftir að ég hafði svarað þeirri fyrirspurn taldi FME mig ekki hafa búið yfir innherjaupplýsingum og taldi ekki tilefni til frekari athugunar. Ég lít svo á að með þeirri ákvörðun hafi FME staðfest að umrædd sala hafi verið eðlileg og hafi þar með hreinsað mig af þessum ásökunum. Að gefnu tilefni vil ég að lokum ítreka það sem áður hefur komið fram og verið staðfest af embætti sérstaks saksóknara. Engir samningar hafa verið gerðir milli mín og embættis sérstaks saksóknara um að fallið verði frá málsókn á hendur mér gegn því að ég beri vitni. Á öllum stigum málsins hef ég einvörðungu, eins og mér ber skylda til, svarað spurningum embættisins eftir bestu getu. Virðingarfyllst Halldór B. Lúðvígsson
Aldrei spurður út í söluna á hlutabréfunum í Exista og Kaupþingi tæpri viku fyrir fall bankans Halldór Bjarkar Lúðvígsson segist hafa þurft að sitja undir dylgjum og aðdróttunum af hálfu Hreiðars Más Sigurðssonar. Hann kveðst aldrei hafa við sérstakan saksóknara um sakaruppgjöf. 9. desember 2015 20:47
„Ég held að þetta þoli ekkert óskaplega mikið dagsljós“ Lögfræðingi hjá Kaupþingi í Lúxemborg leist ekkert á lánveitingar bankans til eignalítilla eignarhaldsfélaga í byrjun ágúst 2008 og taldi viðskiptin sem þær tengdust ekki "eðlilegan bankabusiness.“ 8. desember 2015 20:15
Hreiðar Már og saksóknari tókust harkalega á í héraðsdómi "Ég tók ábyrgð mína sem forstjóri Kaupþings mjög alvarlega og ég helgaði líf mitt velgengni Kaupþings,” sagði Hreiðar Már Sigurðsson. 7. desember 2015 11:49
Halldór Bjarkar um Hreiðar Má: „Mér datt ekki í hug að hann myndi hlaupast svona undan ábyrgð“ Lykilvitni ákæruvaldsins í CLN-málinu bar vitni í héraðsdómi í dag. 9. desember 2015 18:58
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar