Mesti vöxtur í kortunum síðan 2007 Sæunn Gísladóttir skrifar 15. desember 2015 10:35 Kortaveltujöfnuður (kortavelta útlendinga hér á landi að frádreginni veltu Íslendinga erlendis) var með neikvæður um tæpa 0,3 milljarða króna í mánuðinum. Vísir/Vilhelm
Gríðarlegur vöxtur var í kortaveltu Íslendinga í nóvember síðastliðnum og hefur aukningin á milli ára ekki verið meiri síðan í ágúst á hinu mikla einkaneysluári 2007. Jafnframt var í fyrsta sinn nettó gjaldeyrisútflæði á árinu í nóvember vegna kortaveltu, kortavelta Íslendinga í útlöndum var umfram kortaveltu útlendinga hér á landi, en slíkt hefur ekki atvikast síðan í desember í fyrra. Þetta kemur fram í greiningu Íslandsbanka. Alls jókst kortavelta einstaklinga um 14,1 prósent að raunvirði á milli ára í nóvember síðastliðnum, sem er eins og áður segir mesti vöxtur hennar síðan í ágúst 2007. Þar af jókst kortavelta Íslendinga innanlands um 12,9 prósent (miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis) og kortavelta Íslendinga í útlöndum um 22,1 prósent. Ætla má að hinn svokallaði „Black Friday“ og svo í kjölfarið „Cyber Monday“ hafi heldur betur leitt til innspýtingar í smásöluverslun. Sá fyrrnefndi markar upphaf jólavertíðarinnar í Bandaríkjunum og er stærsti verslunardagur þar í landi, þar sem verslanir bjóða vörur á tilboðsverði í kjölfar Þakkargerðarhátíðarinnar. Virðast Íslendingar hafi tekið honum fagnandi, en mun meiri brögð voru að því að verslanir auglýstu slíkan dag nú en fyrri ár. Þó virðist sem slíkir tilboðsdagar hafi skilað sér í mismikilli veltuaukningu eftir tegundum verslana, eins og Rannsóknarsetur verslunarinnar bendir á í tilkynningu sinni í gær í tengslum við Smásöluvísitölu RSV. Samkvæmt henni virðist ljóst að áhrif framangreindra daga hafi verið afar mismunandi eftir verslunum, og virðist aukningin hafi skilað sér mest í verslun með heimilistæki og húsbúnað en sama ris var ekki að sjá í t.a.m. fataverslun. Nærtæk skýring er sá öri vöxtur sem orðið hefur í fatakaupum landsmanna í erlendum netverslunum undanfarið.Teikn um of mikinn einkaneysluvöxtAf ofangreindum tölum má ráða að vísbendingar eru um talsvert mikinn einkaneysluvöxt þessa dagana. Sé tekið mið af október og nóvember samanlagt er kortavelta einstaklinga 10 prósent meiri að raunvirði á þessu tímabili en á sama tímabili í fyrra, og verði þróunin áþekk í desembermánuði þá verður um mestan vöxt í kortaveltu einstaklinga að ræða nú á 4. ársfjórðungi frá sama fjórðungi árið 2007. Þó kann að vera að þessir tilboðsdagar í verslunum í nóvember hafi fært jólaverslun framar í tímann hjá Íslendingum, og því verði ekki nærri eins mikil aukning í desembermánuði. Við teljum a.m.k. að árið 2007, þar sem mikill einkaneysluvöxtur var lánsfjármagnaður að stórum hluta, sé ekki að endurtaka sig í neysluhegðun Íslendinga, þó við séum þeirrar skoðunar að einkaneysla sé að vaxa ansi myndarlega þessa dagana.Vísbending um töluverða fjölgun erlendra ferðamannaKortavelta útlendinga hér á landi nam um 9,2 milljörðum króna í nóvember sl. borið saman við 6,5 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Jafngildir þetta aukningu upp á 41 prósent í krónum talið á milli ára. Ferðamálastofa hefur enn sem komið er ekki birt tölur um fjölda erlendra ferðamanna í nóvember, en út frá þessum tölum má ætla að það hafi verið dágóð fjölgun á þeim á milli ára líkt og verið hefur alla mánuði ársins. Ef meðalneysla hvers ferðamanns hér á landi hefur verið á svipuðum nótum og hún var í októbermánuði hafa erlendir ferðamenn verið í það minnsta 85 þúsund í mánuðinum, sem jafngildir 40 prósent fjölgun ferðamanna í nóvember á milli ára.Kortaveltujöfnuður í fyrsta sinn neikvæður á árinuAlls nam kortavelta Íslendinga í útlöndum (vegna ferðalaga og netviðskipta) um 9,4 milljörðum króna í nóvember síðastliðnum, og var kortaveltujöfnuður (kortavelta útlendinga hér á landi að frádreginni veltu Íslendinga erlendis) þar með neikvæður um tæpa 0,3 milljarða króna í mánuðinum. Þrátt fyrir neikvæðan jöfnuð er hér um að ræða hagfelldustu útkomu þessa jafnaðar frá upphafi í nóvembermánuði, en á sama tíma í fyrra var hann neikvæður um rúmlega 1,7 milljarða króna og árið þar á undan um 2,5 milljarða króna Eru því vísbendingar um að þjónustujöfnuður á fjórða ársfjórðungi komi til með að vera hagstæðari á því tímabili en nokkru sinni fyrr, en eins og við fjölluðum nýlega um var kortaveltujöfnuður í fyrsta sinn jákvæður í októbermánuði. Jafnframt er orðið ljóst að fjöldi erlendra ferðamanna sem koma hingað til lands er orðinn svo mikill að neysla Íslendinga á erlendri grundu nær ekki að slá neyslu ferðamanna hérlendis við, þrátt fyrir öran vöxt í utanferðum og netverslun Íslendinga.
Mest lesið Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Viðskipti innlent Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Davíð Tómas ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvernig fæ ég unglingana mína til að fara betur með peninga? Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Sjá meira