Tvö hús sömu gerðar í Eyjum hafa stórskemmst í stórviðrum Svavar Hárvarðsson skrifar 19. desember 2015 09:00 Iðnaðarmenn frá Steina og Olla unnu við það í vikunni að loka þakinu og ganga frá þannig að ekki verði frekari skemmdir. vísir/óskar
Húsið sem stórskemmdist í Vestmannaeyjum í aftakaveðrinu sem gekk yfir eyjarnar og landið allt 7. desember er annað af svokölluðum Sunhouse-húsum sem stórskemmist eða eyðileggst í aftakaveðri. Þriðja húsið var rifið fyrir nokkrum árum, en þau voru níu alls sem byggð voru eftir eldgosið í Heimaey árið 1973. Eins og landsmönnum er í fersku minni voru fyrstu alvarlegu fréttirnar sem bárust í aftakaveðrinu fyrir rúmri viku að þak væri að rifna af húsi í Vestmannaeyjum, nánar tiltekið húsi við Smáragötu 34 sem stendur ofarlega í bænum. Húsið skemmdist mjög mikið en ekki er útséð með hvort mögulegt verður að gera við það. Í miklu óveðri 9. október árið 2009 bárust áþekkar fréttir frá Vestmanneyjum en þá var það hús sömu gerðar sem eyðilagðist en var staðsett mun neðar í bænum – en líkt og nú fauk þakið af húsinu. Þriðja húsið af Sunhouse-gerð var rifið fyrir nokkrum árum og nýtt byggt á grunni þess – en ástæðurnar eru Fréttablaðinu ekki kunnar.Í mikilli húsnæðiseklu strax eftir eldgosið 1974 voru flutt níu hús af þessari gerð, og flest voru tilbúin 1975. Um einingahús var að ræða, fimm voru reist við Smáragötu og hin fjögur neðar í bænum. Nú hafa tvö hús skemmst og eyðilagst í óveðrum og eitt var rifið niður og nýtt hús byggt á grunni þess. Þetta þóttu hentug hús þar sem þau voru fljótreist á sama tíma og hundruð Vestmannaeyinga voru að flytja aftur heim á þessum árum. Fréttablaðið hefur heyrt að í síðustu viku hafi þetta verið rætt í Vestmannaeyjum og einhverjir eru hugsi yfir því að þrjú hús séu ónýt þó aldur þeirra á þessu ári sé aðeins fjörutíu ár. Sögunni fylgir að grindverk hafi verið reist austan megin við húsin strax 1976 til að brjóta austanvind sem kom beint á húsin annars, en það mun ekki hafa tengst því á nokkurn hátt að húsunum væri vantreyst. Sigurður Smári Benónýsson, skipulags- og byggingafulltrúi Vestmannaeyjabæjar, segir ekkert liggja fyrir um skemmdir á húsinu við Smáragötu, og ekkert hafi komið inn á borð bæjaryfirvalda um samhengi þess að tvö hús af Sunhouse-gerð hafi skemmst svo illa í vindi og eigandi þriðja hússins hafi ákveðið að rífa það. Hann hafi ekki upplýsingar um viðhald og fjölmarga aðra þætti sem þyrfti að gaumgæfa áður en stórar ályktanir yrðu dregnar.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Sjá meira