Menning

Nýr bóksölulisti: Forlagið fyrirferðarmikið á sölulistum

Jakob Bjarnar skrifar
Auður og Páll Baldvin eru þau sem koma mest á óvart. Óttar Sveinsson er því alvanur að vera á topplistanum og Sigrún er glæsilegur fulltrúi matreiðsluáhuga þjóðarinnar.
Auður og Páll Baldvin eru þau sem koma mest á óvart. Óttar Sveinsson er því alvanur að vera á topplistanum og Sigrún er glæsilegur fulltrúi matreiðsluáhuga þjóðarinnar.
Páll Baldvin Baldvinsson og Auður Jónsdóttir gera sig heldur betur gildandi á glænýjum bóksölulista sem tekur til bóksölu dagana 30. nóvember til 6. desember. Auður er glæsilegur fulltrúi fagurbókmenntanna og veitir glæpasagnahöfundunum þaulsetnu, þeim Yrsu og Arnaldi, verðugt aðhald. Þá er afrek Páls Baldvins einkar athyglisvert; fyrir rúmum hálfum mánuði kom út doðrantur eftir hann, sem byggir á þriggja ára rannsóknum hans á stríðsárunum á Íslandi. Og hann hittir beint í mark - en fáheyrt er að svo stór bók sé að gera svo góða hluti og raun ber vitni á sölulistum.

Báðar þessar bækur eru tilnefndar til Bókmenntaverðlaunanna og má vera að gullmiðinn sem er til marks um það, hafi liðkað til fyrir sölunni.

Nú eru línur teknar að skýrast heldur betur, fyrsta helgin í desember að baki. Gamalkunnir hundar eru á topplistanum, glæpasagnakonungshjónin, Óttar Sveinsson með Útkallsbók sína og svo þeir barnabókahöfundar; Gunnar Helgason, Vilhelm Anton og Ævar Þór, sem þekkja það vel að vegna vel þegar bóksalan er annars vegar. Ávallt er að finna matreiðslubækur ofarlega á sölulistum og nú er það Sigrún Þorsteinsdóttir sem tekur sér þá stöðu.

Þá er vert að vekja á því athygli að þessa vikuna er Yrsa að hafa Arnald undir í bóksölu en Arnaldur er fastur fyrir og trónir efstur og öruggur á toppi hins Uppsafnaða lista sem er er talning frá upphafi árs.

Sé litið til topplistans sérstaklega þá er ljóst að Forlagið má vel við una. Yrsa reyndar gerir sitt til að ógna veldi Forlagsins, er fulltrúi Veraldar á lista, Óttar einnig en útgáfa hans sjálfs stendur að baki bókar hans og Bjartur með Leynigarð Basford. Annars á Forlagið listann og má bókaútgáfan sú vel við una.

 

Topplistinn – söluhæstu bækurnar vikuna 30. nóvember til 6. desember

  1. Sogið – Yrsa Sigurðardóttir – Veröld
  2. Þýska húsið – Arnaldur Indriðason – Forlagið, Vaka Helgafell
  3. Mamma klikk! – Gunnar Helgason – Forlagið, Mál og menning
  4. Þín eigin goðsaga – Ævar Þór Benediksson – Forlagið, Mál og menning
  5. Útkall í hamfarasjó – Óttar Sveinsson – Útkall
  6. Stríðsárin 1938-1945 – Páll Baldvin Baldvinsson – Forlagið, JPV
  7. Stóri skjálfti – Auður Jónsdóttir – Forlagið, Mál og menning
  8. Café Sigrún – Sigrún Þorsteinsdóttir – Forlagið, Vaka Helgafell
  9. Leynigarður – Johanna Basford – Bjartur
  10. Vísindabók Villa : geimurinn og geimferðir – Vilhelm Anton Jónsson og Sævar Helgi Bragason – Forlagið, JPV


Íslensk skáldverk

  1. Sogið – Yrsa Sigurðardóttir – Veröld
  2. Þýska húsið – Arnaldur Indriðason – Forlagið, Vaka Helgafell
  3. Stóri skjálfti – Auður Jónsdóttir – Forlagið, Mál og menning
  4. Eitthvað á stærð við alheiminn – Jón Kalman Stefánsson - Bjartur
  5. Endurkoman – Ólafur Jóhann Ólafsson – Veröld
  6. Nautið – Stefán Máni – Sögur útgáfa
  7. Hundadagar – Einar Már Guðmundsson – Forlagið, Mál og menning
  8. Og svo tjöllum við okkur í rallið – Guðmundur Andri Thorsson – Forlagið, JPV
  9. Útlaginn – Jón Gnarr – Forlagið, Mál og menning
  10. Sjóveikur í München – Hallgrímur Helgason – Forlagið, JPV
 

Ævisögur

  1. Brynhildur Georgía Björnsson – Ragnhildur Thorlacius – Bjartur
  2. Týnd í Paradís – Mikael Torfason – Sögur útgáfa
  3. Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson – Ólafur Þór Jóelsson og Viðar Brink – Sena
  4. Munaðarleysinginn – Sigmundur Ernir Rúnarsson og Matthías Bergsson – Veröld
  5. Þá hló Skúli – Óskar Guðmundsson – Forlagið, JPV
  6. Egils sögur – á meðan ég man – Páll Valsson og Egill Ólafsson – Forlagið, JPV
  7. Steven Gerrard – árin hjá Liverpool – Sigfús Guttormsson – Bókaútgáfan Hólar
  8. Þetta var nú bara svona – Jóhann Guðni Reynisson – Bókaútgáfan Hólar
  9. Nína S. – Hrafnhildur Schram – Crymogea
  10. Eftirlýstur – Bill Browder – Almenna Bókafélagið


Fræði og almennt efni

  1. Útkall í hamfarasjó – Óttar Sveinsson – Útkall
  2. Stríðsárin 1938-1945 – Páll Baldvin Baldvinsson – Forlagið, JPV
  3. Gleðilegt uppeldi – Margrét Pála Ólafsdóttir – Bókafélagið
  4. Kafbátur í sjónmáli – Háski í hafi – Illugi Jökulsson – Sögur útgáfa
  5. Traktorar í máli og myndum – Jemima Dunne – Forlagið, JPV
  6. Hersetan á Ströndum og Norðurlandi vestra – Friðþór Eydal – Bókaútgáfan Hólar
  7. Áfram Ísland – Björn Bragi Arnarsson – Fullt tungl
  8. Hrekkjalómafélagið – Ásmundur Friðriksson – Bókaútgáfan Hólar
  9. Öll mín bestu ár – Stefán Halldórsson – Stefán Halldórsson
  10. Hundrað leiðir fyrir hund til að þjálfa manneskjuna sína – Simon Whaley – Bókaútgáfan Hólar


Barnabækur -- skáldverk

  1. Mamma klikk! – Gunnar Helgason – Forlagið, Mál og menning
  2. Þín eigin goðsaga – Ævar Þór Benediktsson – Forlagið, Mál og menning
  3. Skósveinarnir, leitið og finnið – Bókaútgáfan Hólar
  4. Jólasyrpa 2015 – Walt Disney – Edda útgáfa
  5. Amma óþekka og tröllin í fjöllunum – J.K. Kolsöe – Bókabeitan
  6. Prinsessusögur – Setberg
  7. Dúkka – Gerður Kristný – Forlagið, Mál og menning
  8. Kvöldsögur fyrir krakka – Setberg
  9. Ég elska máva – Þorgrímur Þráinsson – Forlagið, Mál og menning
  10. Kafteinn Ofurbrók og endurkoma.. – Dav Pilkey – Forlagið, JPV


Ljóð

  1. Öskraðu gat á myrkrið – Bubbi Morthens – Forlagið, Mál og menning
  2. Frelsi – Linda Vilhjálmsdóttir – Forlagið, Mál og menning
  3. Perlur úr ljóðum íslenskra kvenna – Silja Aðalsteinsdóttir ritst. – Forlagið
  4. Jólaljóð – Gylfi Gröndal valdi – Forlagið
  5. Ljóðaúrval – Gyrðir Elíasson – Dimma
  6. Hugmyndir : andvirði hundrað milljónir – Halldór Halldórsson – Bjartur
  7. Góðir farþegar – Sindri Freysson – Sögur útgáfa
  8. Leir – Ýmsir – Óðinsauga
  9. Tilfinningarök – Þórdís Gísladóttir – Bjartur
  10. Um jólin – Þórarinn Hannesson – Kómedíuleikhúsið


Uppsafnaður listi - mest seldu bækurnar frá 1. janúar 2015

  1. Þýska húsið – Arnaldur Indriðason – Forlagið, Vaka Helgafell
  2. Leynigarður – Johanna Basford – Bjartur
  3. Sogið – Yrsa Sigurðardóttir – Veröld
  4. Himneskt að njóta – Sólveig Eiríksdóttir og Hildur Ársælsdóttir – Himneskt
  5. Mamma klikk! – Gunnar Helgason – Forlagið, Mál og menning
  6. Þín eigin goðsaga – Ævar Þór Benediktsson – Forlagið, Mál og menning
  7. Útkall í hamfarasjó – Óttar Sveinsson – Útkall
  8. Stríðsárin 1938 – 1945 – Páll Baldvin Baldvinsson – Forlagið, JPV
  9. Afturgangan – Jo Nesbø – Forlagið, JPV
  10. Stúlkan í trénu – Jussi Adler Olsen – Forlagið, Vaka Helgafell

    Fleiri lista en þessa getur að líta hér, á síðu Félags íslenskra bókaútgefenda.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×