Úr NATÓ án tafar! Ástþór Magnússon skrifar 24. nóvember 2015 00:00 Óásættanlegt er að Íslendingar séu hluti af hernaðarbandalagi sem nú hefur skotið niður rússneska þotu sem vann að því að uppræta fyrir okkur hryðjuverkahópa sem ógna heimsfriðnum. Íslendingar eiga að senda Rússum samúðarkveðjur, fordæma þennan stríðsglæp og segja skilið við NATÓ. Heimsstyrjaldar ástand er að skapast með stuðningi Íslendinga og NATÓ við brjálaða blóði drifna utanríkisstefnu Bandaríkjanna í hernaðarbrölti, stríðsglæpum og olíuþjófnaði í Mið-Austurlöndum sem hefur orsakað limlestingar, dauða og vergang milljóna manna á undanförnum árum. Nú er þetta að snúast gegn okkur nákvæmlega eins og ég sagði í aðdraganda forsetakosninga fyrir 20 árum að myndi gerast ef ekki kæmi til ný hugmyndafræði. Ég dreifði bókinni „Virkjum Bessastaði“ inn á öll heimili á Íslandi og fór í auglýsingaherferð með þá hugmyndafræði að forseti Íslands gerist alþjóðlegur boðberi friðar og umburðarlyndis og að á Íslandi rísi háskóli friðar og lýðræðisþróunar. Eftir að hafa lesið hundruð bóka og greina erlendra fræðimanna um ástandið í heiminum var mér ljóst að snarbrjáluð hugmyndafræði Vesturlanda undir forystu Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum myndi leiða til átaka, sundrungar og upplausnarástands sem myndi dreifa sér um alla heimsbyggðina. Lýðræði og friðsamlegu samfélagi verður ekki komið á með byssuvaldi, sprengjuárásum, leppstjórnum, stuðningi við vopnaða uppreisnarmenn né pyntingum úr smiðju Hvíta hússins. Hvorki Íslendingar né aðrar þjóðir geta byggt sér varanlega varnargarða gegn ofbeldi frá Mið-Austurlöndum né annars staðar. Við getum heldur ekki víggirt heimili hinna ríku. Mannkynssagan kennir okkur að slíkt samfélag gengur aldrei upp til lengdar. Við verðum að leysa orsök vandans. Ástandið sem er að skapast í Evrópu með gífurlegum flóttamannastraum verður ekki leyst með landamæraeftirliti. Hryðjuverkaógnin er einnig innan frá og tengist ekki flóttamönnum sérstaklega. Þá getum við ekki lokað flóttafólk af í gettóum eða búrum. Enginn sættir sig við þannig líf. Við sjáum í Palestínu margvísleg vandamál vegna hernáms, girðinga og múra. Slík Evrópa mun loga í ófriði. Þeir sem vilja hugsa þetta út frá fjárhagslegum hagsmunum Íslendinga geta horft fram á hrun í ferðamannaiðnaði þegar fólk hættir að vilja ferðast vegna hryðjuverkahættu. Komi til notkunar kjarnorkuvopna er ljóst að íslenskur sjávarútvegur er einnig í hættu því fiskurinn í sjónum þarf hreina náttúru eins og við sjálf. Íslendingar eiga að bera virðingu fyrir öðrum menningarheimum og trúarbrögðum. Voðaverk ISIS/Daesh eru ekki af trúarlegum orsökum. Þeirra glæpir og hryðjuverk hafa ekkert með venjulega múslima að gera sem eru nánast allir mjög friðsamt og umburðarlynt fólk. Blóð þeirra milljóna sem spillt hefur verið með hernaðarbrölti okkar í Mið-Austurlöndum eru fæða þessara glæpasamtaka sem hafa vaxið eins og risavaxinn snákur undir sandinum og sem nú hefur risið upp gegn skapara sínum, Vesturlöndum. Við þurfum að horfast í augu við að bera ábyrgð á þessu fyrirbæri ásamt bandalagsþjóðum okkar í NATÓ. Tími er kominn að Íslendingar sýni í verki að við erum þjóð friðar og umburðarlyndis. Nú vantar ljósberann frá Íslandi í pólitíska umræðu á alþjóðavettvangi og þá nýju hugmyndafræði Friðar 2000 sem ég hef í tuttugu ár talað fyrir að forseti Íslands boði heimsbyggðinni. Sá hornsteinn friðar, kærleika og umburðarlyndis sem lagður var af Þorgeiri ljósvetningagoða á Alþingi fyrir rúmum þúsund árum er mannkyninu ekki síður mikilvægur boðskapur en sjálft jólaguðspjallið. Virkjum Bessastaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar