Skaut svartan táning sextán sinnum Samúel Karl Ólason skrifar 25. nóvember 2015 09:53 Laquan McDonald var skotinn sextán sinnum.
Lögreglumaður í Chicago í Bandaríkjunum hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu eftir að hafa skotið svartan táning, Laquan McDonald, sextán sinnum. Pilturinn, sem var 17 ára gamall, lét lífið og myndband af atvikinu hefur verið birt vegna ákærunnar. Fjölmenn mótmæli voru á götum Chicago borgar eftir að myndbandið var birt, en skotárásin átti sér stað í október í fyrra.Lögregluþjónninn Jason Van Dyke hefur verið ákærður fyrir morð af fyrstu gráðu.Vísir/GettyLögreglan segir að Laquan hafi verið með hníf þar sem hann var á gangi á fjölförnum vegi. Á myndbandi af atvikinu, sem birt var í gærkvöldi, má sjá lögreglumann nálgast Laquan og skjóta hann til bana. Jason Van Dyke skaut Laquan sextán sinnum og má greinilega sjá að stórum hluta skotanna var skotið eftir að pilturinn féll í jörðina. Van Dyke hefur nú verið ákærður fyrir morð.Samkvæmt frétt Vox skaut Van Dyke á Laquan í fjórtán til fimmtán sekúndur og var hann eini lögreglumaðurinn sem hleypti af byssu sinni. Hann gerði það innan við 30 sekúndum eftir að hann kom á vettvang. Minnst tvö af skotunum sextán fóru í bak piltsins. Lögreglan segir að Laquan hafi ekki fylgt skipunum um að leggja frá sér hnífinn. Rannsókn leiddi í ljós að hann var undir áhrifum ofskynjunarlyfsins PCP. Aðgerðarsinnar og blaðamenn hafa barist fyrir því að fá myndbandið birt, samkvæmt frétt BBC. Stéttarfélag lögreglumanna í Chicago var alfarið á móti birtingunni og segir það hafa áhrif á réttarhöldin. Saksóknarar segja að Van Dyke hafi ekki verið í rétti þegar hann skaut Laquan þar sem pilturinn var ekki að ógna lögreglumönnunum né að nálgast þá.Vert er að vara lesendur við myndbandinu hér að neðan, þar sem það getur vakið óhug.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira