Framtíðarsamfélag Katrín Jakobsdóttir skrifar 17. nóvember 2015 07:00 Um þessar mundir flytja fleiri Íslendingar burt en til landsins. Auðvitað hefur það verið meðvitað markmið okkar í alþjóðlegu samstarfi að Íslendingar geti sótt sér menntun, þekkingu og reynslu um allan heim. Tölur um búferlaflutninga vekja hins vegar ýmsar spurningar um það hvort okkur er að takast að skapa samfélag hér á landi sem fólk vill gera að heimili sínu og auðga með reynslu sinni, þekkingu og menntun. Líklega var óumflýjanlegt að ungt fólk leitaði út fyrir landsteinana fyrst eftir hrun. Sú þróun snerist hins vegar við enda ríkisstjórn Vinstri-grænna og Samfylkingarinnar meðvituð um að hún væri óviðunandi til lengri tíma. Þess vegna var m.a. ráðist í fjárfestingaáætlun til að fjölga fjölbreyttum atvinnutækifærum. Stefnan var sett á að lengja fæðingarorlof, að hluti námslána myndi breytast í styrk og fleira. Því miður féll núverandi ríkisstjórn frá þessum markmiðum. Núverandi ríkisstjórn getur hins vegar ekki kosið að líta framhjá þeirri þróun sem við sjáum núna. Á landsfundi Vinstri-grænna á dögunum var samþykkt sérstök stefna í málefnum ungs fólks. Hún felur m.a. í sér að boðið verði upp á húsnæði á viðráðanlegu verði, menntun verði aðgengileg öllum, námslánakerfi verði þannig að verulegur og vaxandi hluti lánanna verði styrkur, fæðingarorlof verði að minnsta kosti tólf mánuðir og leikskólinn taki við að því loknu án gjaldtöku. Sálfræðiþjónusta verði aðgengileg án endurgjalds á öllum skólastigum og lýðræðisþátttaka verði höfð að leiðarljósi við alla samfélagsþróun. Almenningssamgöngur verði raunverulegur valkostur fyrir alla sem ekki vilja eyða formúum í að eiga bíl. Og síðast en ekki síst verði öflugt netsamband tryggt um allt land. Ísland hefur alla burði til að verða eftirsóknarverður valkostur fyrir ungt fólk. Við eigum að kappkosta að byggja hér öflugt samfélag, þekkingarsamfélag, jafnaðarsamfélag og skapandi samfélag og snúa þannig vörn í sókn. Þar eigum við í samkeppni við umheiminn en ekki hvert annað og því verðum við að ná saman um markmið sem skila árangri. Við Vinstri-græn erum tilbúin að leggja okkar af mörkum í þá vinnu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Sjá meira
Um þessar mundir flytja fleiri Íslendingar burt en til landsins. Auðvitað hefur það verið meðvitað markmið okkar í alþjóðlegu samstarfi að Íslendingar geti sótt sér menntun, þekkingu og reynslu um allan heim. Tölur um búferlaflutninga vekja hins vegar ýmsar spurningar um það hvort okkur er að takast að skapa samfélag hér á landi sem fólk vill gera að heimili sínu og auðga með reynslu sinni, þekkingu og menntun. Líklega var óumflýjanlegt að ungt fólk leitaði út fyrir landsteinana fyrst eftir hrun. Sú þróun snerist hins vegar við enda ríkisstjórn Vinstri-grænna og Samfylkingarinnar meðvituð um að hún væri óviðunandi til lengri tíma. Þess vegna var m.a. ráðist í fjárfestingaáætlun til að fjölga fjölbreyttum atvinnutækifærum. Stefnan var sett á að lengja fæðingarorlof, að hluti námslána myndi breytast í styrk og fleira. Því miður féll núverandi ríkisstjórn frá þessum markmiðum. Núverandi ríkisstjórn getur hins vegar ekki kosið að líta framhjá þeirri þróun sem við sjáum núna. Á landsfundi Vinstri-grænna á dögunum var samþykkt sérstök stefna í málefnum ungs fólks. Hún felur m.a. í sér að boðið verði upp á húsnæði á viðráðanlegu verði, menntun verði aðgengileg öllum, námslánakerfi verði þannig að verulegur og vaxandi hluti lánanna verði styrkur, fæðingarorlof verði að minnsta kosti tólf mánuðir og leikskólinn taki við að því loknu án gjaldtöku. Sálfræðiþjónusta verði aðgengileg án endurgjalds á öllum skólastigum og lýðræðisþátttaka verði höfð að leiðarljósi við alla samfélagsþróun. Almenningssamgöngur verði raunverulegur valkostur fyrir alla sem ekki vilja eyða formúum í að eiga bíl. Og síðast en ekki síst verði öflugt netsamband tryggt um allt land. Ísland hefur alla burði til að verða eftirsóknarverður valkostur fyrir ungt fólk. Við eigum að kappkosta að byggja hér öflugt samfélag, þekkingarsamfélag, jafnaðarsamfélag og skapandi samfélag og snúa þannig vörn í sókn. Þar eigum við í samkeppni við umheiminn en ekki hvert annað og því verðum við að ná saman um markmið sem skila árangri. Við Vinstri-græn erum tilbúin að leggja okkar af mörkum í þá vinnu.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar