Lífið

Airwaves hefst í kvöld: „Má búast við stórkostlegri skemmtun“

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Frá Iceland Airwaves-hátíðinni í fyrra.
Frá Iceland Airwaves-hátíðinni í fyrra. vísir/andri marinó
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves byrjar með pompi og prakt í kvöld. Erlenda gesti hefur drifið að í vikunni, en þeir verða í miklum meirihluta á hátíðinni. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar býst við tugþúsundum gesta.

Hundruð listamanna munu troða upp um bæinn þveran og endilangan næstu daga. Uppselt er á hátíðina, en alls seldust níu þúsund miðar. Áhugasamir þurfa þó ekki að örvænta því ekki þarf miða á svokallaða hliðarviðburði sem haldnir verða víða um borgina, að sögn Gríms Atlasonar, framkvæmdastjóra hátíðarinnar.

„Fólk má fyrst og fremst búast við stórkostlegri skemmtun. Það eru 240 hljómsveitir og listamenn sem spila á 293 opinberum tónleikum, það er tónleikum sem eru á dagskrá. Síðan eru um 690 viðburðir sem gerast utan hátíðarinnar sem við köllum off venue dagskrá þannig að það eru 900 hljómleikar rúmlega sem fólk getur skellt sér á um helgina og þessa daga."

Hann segir að allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. „Gus Gus, Gísli Pálmi, Úlfur Úlfur, Sóley, FM Belfast og fleiri sem eru að gera gott mót. Síðan erum við með Beach house, Mercury Rev, Ariel Pink og auðvitað John Grant og sinfonían sem er einn af hápunktunum," segir Grímur og bætir við að metfjöldi ferðamanna verði á hátíðinni í ár.

Það eru 5.500 erlendir gestir sem eru á hátíðinni. Það er algjört met, það voru 5000 í fyrra. Það er mikill vöxtur í því en við getum ekki mikið vaxið held ég. Það er ekki nema Íslendingar hætti alveg að kaupa sér miða á hátíðina sem ég vona nú ekki en það er mjög gott að það séu svona margir erlendir gestir. Setur blómlegt líf í Reykjavík núna."

Til að skapa rými fyrir þennan mikla mannfjölda verður hluta af tveimur götum breytt tímabundið í göngugötur. Um er að ræða annars vegar Laugaveg frá Vatnsstíg niður að gatnamótum Bankastrætis og Þingholtsstrætis, og hins vegar Skólavörðustíg frá gatnamótum Bergastaðastrætis að Bankastræti. Herlegheitin hefjast á sjöunda tímanum í kvöld, en dagskrána má finna á heimasíðu hátíðarinnar, Icelandairwaves.is


Tengdar fréttir

Ferðamenn kaupa ekki bara minjagripi

Kortavelta erlendra ferðamanna í íslenskum verslunum hefur færst töluvert í aukana undanfarin misseri. Einungis 14,6 prósent af veltunni er í minjagripabúðum. Kaupmenn á Laugavegi segjast finna fyrir aukinni verslun ferðamanna.

Menn geta gengið af göflunum í miðborginni

Miðborg Reykjavíkur hefur tekið á sig glæsilega mynd því nú hafa nokkrir listamenn lokið við að mála tólf listaverk á jafn margar byggingar í miðbænum.

Spilar tuttugu og þrisvar sinnum á fimm dögum á Airwaves

Eftirsóttustu menn Airwaves 2015 „Svo þegar maður byrjar á lokalaginu, þá veit maður að maður er orðinn of seinn á næsta gigg,“ segir Hrafnkell Örn Guðjónsson trommari, sem spilaði á flestum viðburðum í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×